Hrólfur, sem var stjórnandi hjá borginni í á fjórða áratug og tók við starfinu árið 2012, lét af störfum hjá borginni í apríl síðastliðnum. Hann segir liggja ljóst fyrir að 120 milljónum króna hafi verið varið í verkefnið án þess að fyrir lægi heimild til þess.
„Það voru auðvitað bara mistök sem ég tek á mig,“ segir Hrólfur.

Vill að innri endurskoðandi fái andrými
Kostnaður við endurbygginguna fór úr áætluðum 155 milljónum í 415 milljónir. Hrólfur sagði að borgarfulltrúar hefðu ekki verið meðvitaðir um framúrkeyrslu verkefnisins fyrr en í ágúst síðastliðnum. Þá lagði fjármálahópur borgarinnar spilin á borðið þegar endurskoða átti fjárfestingaráætlunina síðsumars.Hrólfur sagði mikilvægt að fólk gæfi innri endurskoðanda tíma til að fara yfir málið. Þá kæmi í ljós hvernig þetta hefði þróast. Þetta hefði ekki verið vegna einnar ákvörðunar. Rifjaði hann upp störf sín hjá slökkviliðinu á árum áður til samanburðar.
„Ég var lengi í slökkviliðinu. Þú mætir á eldstað og veist ekki neitt. Það eru þrjár hurðir og þú þarft að fara inn um einhverja þeirra. Þú getur ekki annað.“
Hrólfur segir ástæðu þess að hann sé til í að ræða málin svo opinskátt vera að hann starfi ekki lengur hjá borginni. Hann sé ósáttur við umræðuna enda líði starfsfólki borgarinnar illa.

Ekki sammála að verkefnið sé endilega klúður
„Það er þannig að þessi pólitíski slagur sem er núna í gangi í Reykjavíkurborg hefur gríðarlega slæm áhrif á starfsfólk Reykjavíkurborgar og það á mjög erfitt með að verja sig vegna þess að um leið og það gerir það að þá er því um leið borið það á brýn að það sé að draga taum einhverra stjórnmálamanna. Ég er hættur störfum og því get ég komið hér.“Þáttastjórnandinn Sigmar Guðmundsson fullyrti að verkefnið væri klúður.
„Það er ekkert endilega víst,“ sagði Hrólfur. Minnihlutinn í borginni hafi farið offari vegna málsins.
„Já, mér finnst það. Það á segja sem svo að þessi framkvæmd, þó það hafi ekki verið meiningin, að hún sé saga stríðsins. Auðvitað færðu Íslendingar fórnir og urðu vissulega ríkir, í þessu verkefni er verið að fórna fólki en eftir standa glæsileg mannvirki.“
Þá hvetur hann til uppbyggilegrar umræðu. Að rætt verði um hús en ekki bragga. Endalaust sé rætt um strá en fólk skilji ekkert hvað sé á bak við stráin. Nú sé verið að ræða um reikninga vegna snitsel.
„Finnst þér þetta uppbyggileg umræða?“