Martial og Lingard sáu um Everton | Sjáðu mörkin Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 1. janúar 2018 19:30 Manchester United endurheimti annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Everton í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Untied sýndi mun betri frammistöðu en liðið hefur gert lengi á Goodison Park í dag og fóru Paul Pogba og Juan Mata þar fremstir í flokki. Það var markalaust eftir fyrri hálfleikinn og gestirnir frá Manchester komu mun sterkari inn til seinni hálfleiks og heimamenn snertu vart boltann lengi vel framan af hálfleiknum. Anthony Martial braut ísinn fyrir United á 57. mínútu og Jesse Lingard innsiglaði sigur United á 81. mínútu. Gylfi Þór Sigurðsson hvíldi allan tímann á varamannabekk Everton. Gylfi hefur oft átt mjög góðan leik þegar hann spilar við United og oftar en ekki sett mark á leikinn, því spurning hvort hann sé eitthvað hnjaskaður fyrst Sam Allardyce kaus að nota hann ekki. Enski boltinn
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport