Mæla með því að fjárfestar haldi bréfum í Högum Kristinn Ingi Jónsson skrifar 18. janúar 2018 07:30 IFS mælir með því að fjárfestar haldi bréfum sínum í Högum. Vísir/Anton Brink
Hlutabréfagreinendur IFS meta verðmæti hlutabréfa í verslunarfyrirtækinu Högum á 37,6 krónur á hlut samkvæmt nýju verðmati sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Er það um þremur prósentum lægra en gengi bréfanna stóð í eftir lokun markaða í gær. Er mælt með því að fjárfestar haldi bréfum sínum í félaginu. IFS telur þó að virði hlutabréfa Haga sé um 44 krónur á hlut ef tekið er tillit til kaupa félagsins á olíufélaginu Olís, en þau bíða samþykkis Samkeppniseftirlitsins. Áætla greinendurnir að virði bréfanna, að teknu tilliti til kaupanna, geti orðið 48 krónur á hlut í lok þessa árs. Er það hátt í 25 prósentum hærra en núverandi gengi bréfanna. Geta ber þess að IFS hefur ekki metið sérstaklega samlegðaráhrif kaupanna. Í verðmatinu er þó tekið fram að samlegð félaganna geti orðið mikil og möguleikar til tekjuaukningar séu margvíslegir. Sérfræðingarnir taka sem dæmi að virði sé fólgið í lóðum Olís og þá séu staðsetningar þeirra vannýttar. Hægt væri að selja þær eða nýta á aðra vegu til þess að auka virði kaupanna enn frekar. „Við teljum einnig mun meiri samlegð í Olís en Lyfju þar sem dreifikerfi og vöruhús yrðu samnýtt og innkaup sameinuð,“ segir í verðmatinu. Að mati greinenda IFS er nokkur óvissa um hvort Samkeppniseftirlitið leggi blessun sína yfir kaupin. Er bent á að Hagar og Olís séu stærstu félögin í sínum geira, ólíkt til dæmis 365 og Fjarskiptum sem fengu leyfi eftirlitsins til þess að sameinast á síðasta ári. Ekki sé þó ólíklegt að Samkeppniseftirlitið samþykki umrædd kaup. Til lengri tíma sé það jafnframt mögulega þjóðhagslega hagkvæmt.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Gefa út afkomuspá eftir allt saman Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Atvinnulíf Verðskrá Lufthansa hækkar vegna nýs umhverfisgjalds Neytendur Fleiri fréttir Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið Gefa út kynjað skuldabréf Sjá meira