Lífið

Miðasala á Iceland Airwaves 2019 hafin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Blood Orange var á meðal listamanna sem tróðu upp á Iceland Airwaves í ár.
Blood Orange var á meðal listamanna sem tróðu upp á Iceland Airwaves í ár. Alexandra Howard
Iceland Airwaves fór fram í tuttugasta skiptið í ár og ekki það síðasta. Miðasala fyrir hátíðina árið 2019 er hafin en reyndar er aðeins um takmarkað upplag að ræða í bili. Miðarnir kosta 9900 krónur sem er umtalsvert lægra en almennt verð. Miðaverð var 19.900 krónur þar til í september en hækkaði svo í 21.900 krónur.

Sena Live stóð að Iceland Airwaves í fyrsta skipti í ár eftir að fyrirtækið tók við rekstrinum frá fyrri skipuleggjendum. Miðasalan var undir væntingum að sögn Ísleifs Þórhallssonar, framkvæmdastjóra Senu Live. Voru passar á hátíðina, þar sem á þriðja hundrað listamenn frá tugum landa komu fram, seldir einmitt á 9.900 krónur síðasta sólarhringinn.

Skipuleggjendur hátíðarinnar í ár þakka tónleikagestum kærlega fyrir komuna í tilkynningu í dag.

„Þetta var eitt heljarinnar partý og við gætum ekki verið þakklátari.“

Í gær var tilkynnt að Secret Solstice tónlistarhátíðin færi fram í Laugardalnum í júní næsta sumar. Tilkynningin kom nokkuð á óvart því fyrir fjórum vikum sagði Friðrik Ólafsson, einn eigenda og framkvæmdastjóri Secret Solstice, að án frekara fjármagns færi hátíðin ekki fram að ári. Ekki hefur náðst í Friðrik undanfarinn sólarhring.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.