
Skjátími, kvíði og hættur á Netinu
Undanfarin misseri hafa kvartanir unglinga yfir kvíða aukist. Þegar leitað er orsaka kemur oft í ljós að tölvu/síma- og netnotkun þessara barna er mikil og jafnvel fram á nótt. Börn sem fá ekki nægan svefn eru verr í stakk búin til að mæta verkefnum og kröfum daglegs lífs. Þreyta og of lítill svefn eru áhættuþættir.
Margt af því sem börn gera í tölvu getur auðveldlega valdið spennu, streitu og pirringi. Má þar fyrst nefna tölvuleiki. Í verstu tilfellum stjórnar gengi barnsins í tölvuleiknum líðan þess. Gangi illa í leiknum verður barnið reitt og pirrað en gangi vel er barnið glatt og kátt. Tölvuleikir og skjánotkun hafa oft mikið aðdráttarafl og þegar barnið er ekki við tölvuna myndast stundum óþreyja og pirringur. Aðrir hlutir daglegs lífs verða grámyglulegir í augum barns sem upplifir mestu skemmtunina vera í tölvunni. Óhófleg og stundum stjórnlaus tölvunotkun getur auðveldlega dregið úr áhuga barns á námi og skólaástundun, jafnvel tómstundum og samvera með fjölskyldu og vinum minnkar. Hætta er á að barnið einangrist frá vinum og félögum sínum.
Sýnt hefur verið fram á að auknar líkur eru á kvíða, streitu og pirringi og jafnvel þunglyndi hjá börnum í tengslum við tölvunotkun þeirra og er þá átt við tölvuleiki, samfélagsmiðla og myndbönd. Hóflegur tími í tölvu, sem dæmi einn tími á dag, hefur lítil sem engin áhrif á líðan barns samkvæmt rannsóknarniðurstöðum. Um leið og tíminn lengist aukast líkur á vanlíðan. Barn sem eyðir fimm tímum á dag í tölvu er í mikilli áhættu með að þróa með sér kvíðatengd vandamál. Í þeim tilfellum sem foreldrar sjálfir nefna of mikla tölvunotkun og ónógan svefn sem hluta af kvíðavandanum eru börnin ekki endilega sammála og því ekki alltaf fús til að draga úr notkuninni.
Mótvægisaðgerðir til verndar Það er reynsla mín að þegar foreldrum er veitt ráðgjöf taka þeir henni vel og þiggja gjarnan leiðbeiningar. Stundum má skynja vanmátt þeirra sérstaklega ef barnið hefur lengi haft óheftan og jafnvel eftirlitslausan aðgang að tölvu/neti. Í þeim tilfellum treysta foreldrar sér stundum ekki til að setja reglur af ótta við að barnið bregðist illa við því. Sumir foreldrar óttast jafnvel að unglingar þeirra munu bregðast við með ofsa, eigi að fara að setja þeim mörk hvað varðar skjá- og netnotkun. Það gæti því verið mjög hjálplegt ef skólinn hefði fræðslu sem þessa á sinni könnu. Foreldrum yrði þá veittar leiðbeiningar og ráðgjöf um reglur og stuðning til að viðhalda reglunum. Börnunum er kennt að umgangast Netið af varúð, vanda tjáskipti sín á samfélagsmiðlum og varast allar myndsendingar sem geta valdið misskilningi eða sárindum.
Foreldrar eru hvattir til að setja viðeigandi mörk og setja reglur um tölvunotkun um leið og barnið kemst á þann aldur að fara að nota tölvu/síma. Reglurnar þurfa að vera í samræmi við aldur og þroska barnsins og taka mið af gengi þess í skólanum og félagsþroska. Einnig eru foreldrar ávallt hvattir til að ræða við börnin sín um hvernig umgangast skal Netið og samfélagsmiðla.
Klám og barnaníðingar á Netinu Á netinu leynist hættulegt efni. Þar er einnig að finna hættulegt fólk sem hefur þann ásetning að misnota börn.
Hægt er að fara ýmsar leiðir til að vernda börn gegn óæskilegu efni á Netinu. Netvarar eru tæki sem útiloka slíkt efni og koma þannig í veg fyrir að börn villist þangað sem þau eiga ekki erindi. Hvað sem því líður eru foreldrar í bestu stöðunni til að fræða börn sín um Netið og þeir einu sem eiga þess kost að fylgjast með netnotkun barna sinna frá degi til dags.
Upplýst barn á aukna möguleika á að greina atferli og framkomu, hvað sé innan eðlilegra marka og hvað ekki. Barn sem fengið hefur tilheyrandi fræðslu þekkir frekar birtingarmyndir þess sem er óviðeigandi og skaðlegt og að það skuli leita til foreldra sinna fái það óviðeigandi tilboð eða athugasemdir á Netinu.
Netið er orðið hluti af lífi okkar flestra og fæstir geta hugsað sér tilveruna án þess. Á Netinu er mikill fjölbreytileiki; fegurð, ljótleiki, gleði, sorg og allt þar á milli. Gott er að líkja Neti við stórborg. Um þessa stórborg, eins og aðra, þarf leiðsögn og eftirlit. Við myndum ekki sleppa hendinni af barni í stórborg og sama gildir um Netið. Með fræðslu og eftirliti geta börnin glöð nýtt Netið til góðs og umfram allt umgengist það án þess að skaðast.
Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur
Skoðun

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar