Innlent

Sofnaði á klósetti í Kópavogi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ekki fylgir sögunni hvaða fyrirtæki í Kópavogi um ræðir.
Ekki fylgir sögunni hvaða fyrirtæki í Kópavogi um ræðir. Vísir/Vilhelm
Þær voru fjölbreyttar tilkynningarnar sem lögreglumenn brugðust við á höfuðborgarsvæðinu í nótt.

Þannig hafði einstaklingur samband við lögreglu skömmu fyrir miðnætti og sagðist hafa læst sig inni á salerni fyrirtækis í Kópavogi. Við nánari skoðun lögreglumanna hafði hann sofnað á klósettinu og ekki orðið var við það er starfsmenn yfirgáfu staðinn í lok vinnudagsins. Var svefnpurkunni komið til bjargar - sem að sögn lögreglunnar var „frelsinu fegin.“

Þá voru þrír, mjög ölvaðir gestir miðborgarinnar með vandræði sem bregðast þurfti við. Þeirra á meðal var ferðamaður sem hélt vöku fyrir öðrum gestum hótels síns, við lítinn fögnuð. Var hann því fluttur í fangaklefa þar sem hann hefur fengið að sofa úr sér.

Lögreglumenn í eftirlitsferð um bæinn tóku jafnframt eftir því að „stöðuvatn“ hafði myndast á Fjarðargötu milli Vesturgötu og Lækjargötu á tólfta tímanum. Þeir gerðu fátt annað í því máli en að gera Vegagerðinni viðvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×