Sport

Neitaði að fara í lyfjapróf og fékk fjögurra ára bann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Frá keppni í Crossfit í Digranesi. Keppendur á myndinni tengjast fréttinni ekki.
Frá keppni í Crossfit í Digranesi. Keppendur á myndinni tengjast fréttinni ekki. Vísir/Daníel
Bergur Sverrisson hefur verið dæmdur í fjögurra ára bann frá öllum keppnum á vegum ÍSÍ þar sem hann neitaði að taka lyfjapróf eftir Íslandsmótið í Crossfit þann 27. nóvember 2016.

Dómstóll ÍSÍ kvað upp dóm í málinu á föstudag en áður hefur komið fram í umfjöllun um mótið að tveir efstu keppendur í karlaflokki, Hinrik Ingi Óskarsson og Bergur, hafi neitað að fara í lyfjapróf.

Crossfitsamband Íslands svipti þá báða verðlaunum sínum samdægurs.

Bergur skrifaði undir yfirlýsingu þess efnis að hann neitaði að fara í lyfjapróf. Hann viðurkenndi að hann væri á Concerta og bar við að hann væri í prófum í skóla.

Sjá einnig: Íslandsmótið í CrossFit: Neitaði að fara í lyfjapróf, hótaði starfsmönnum en sæmdur gullverðlaunum

Bergur gaf vitnisburð fyrir dómstólnum og sagði að mikill æsingur hefði verið á keppnisstað, „enda hafi félagi hans þá nýverið hafnað að gefa sýni. Hann hafi fetað í fótspor hans og talið sig vera í fullum rétti,“ segir í dóminum.

Meðal þess sem Bergur hélt fram fyrir dómi var að ekki væri heimilt að boða hann í lyfjapróf á móti í Crossfit, enda ekki haldið á vegum sambandsaðila ÍSÍ. Ekki var fallist á þau rök enda lyfjaeftirliti ÍSÍ heimilt að taka íþróttamenn í lyfjapróf, hvar og hvenær sem er.

Var hann því dæmdur í fjögurra ára keppnisbann, sem fyrr segir.

Máli Bergs var vísað frá dómstóli ÍSÍ þann 12. apríl á síðasta ári þar sem að Bergur hélt því fram að hann hafi ekki verið skráður í aðildarfélag ÍSÍ þegar mótið fór fram. Ný gögn voru hins vegar lögð fram um að Bergur hafi verið skráður í aðildarfélag ÍSÍ (Lyftingafélag Reykjavíkur) á þeim tíma og kæran lögð fram á ný.

Hinrik Ingi fékk hins vegar sínu máli vísað frá dómstóli ÍSÍ þar sem ekki þótti sannað að hann hafi verið félagi í aðildarsambandi ÍSÍ þegar áðurnefnt mót fór fram.


Tengdar fréttir

Hinrik Ingi: Ég er til í að fara í lyfjapróf

"Ég hef ekkert að fela. Ég fór ekki í lyfjaprófið því mér fannst vera brotið á mér. Mér fannst þetta vera ófagmannlega gert og asnalegt,“ segir Hinrik Ingi Óskarsson sem í gær varð Íslandsmeistari í CrossFit en síðan sviptur gullverðlaunum og settur í tveggja ára bann af því hann neitaði að fara í lyfjapróf.

Formaður stjórnar CrossFit-sambandsins: Ekki óheppileg uppákoma fyrir okkur

Guðrún Linda Pétursdóttir, formaður stjórnar CrossFit-sambands Íslands, segist ekki orðið vitni að því þegar Hinrik Ingi Óskarsson hótaði starfsmönnum lyfjaeftirlits Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) barsmíðum eftir Íslandsmeistaramótið í CrossFit í Digranesinu í gær.

Úrslit Íslandsmótsins í CrossFit uppfærð

Eins og fram kom á Vísi voru Hinrik Ingi Óskarsson og Bergur Sverrisson, sem lentu í 1. og 2. sæti á Íslandsmótinu í CrossFit, sviptir verðlaunum sínum eftir að þeir neituðu að gangast undir lyfjapróf að mótinu loknu. Þeir voru einnig dæmdir í tveggja ára bann frá CrossFit á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×