Sport

Tom á móti tímanum: Fáðu einstaka innsýn inn í líf Tom Brady | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tom Brady er engum líkur.
Tom Brady er engum líkur. vísir/getty
Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, er fertugur en mun á sunnudaginn keppa í Super Bowl í áttunda sinn á ferlinum og í þriðja sinn á síðustu fjórum árum.

Íþróttaspekingar vestanhafs hafa keppst við því að spá fyrir um endalok Brady í amerískum fótbolta undanfarin ár þar sem enginn hefur áður verið jafngóður og hann er á þessum aldri.

Brady leggur ævintýrlega mikið á sig til að vera ekki bara jafngóður heldur betri en hann var þegar að hann var ungur og ekki bara það heldur í betra formi.

Hann segir frá öllum leyndarmálum sínum og gefur fólki tækifæri til að skyggnast á bakvið tjöldin í nýrri heimildaþáttaröð sem ber heitið Tom vs Time og er sýnd á Facebook Watch.

Fyrstu tvo þættina má sjá hér að neðan.

Þáttur 2
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×