Innlent

Áfram í haldi eftir kæru pilts

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Karlmaður á fimmtugsaldri, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn ungum pilti um nokkurra ára skeið, var í gær úrskurðaður í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald.
 við handtöku.
Karlmaður á fimmtugsaldri, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn ungum pilti um nokkurra ára skeið, var í gær úrskurðaður í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald. við handtöku. Vísir/Eyþór
Karlmaður á fimmtugsaldri, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn ungum pilti um nokkurra ára skeið, var í gær úrskurðaður í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald.

Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu hafa gert kröfu um aðra viku á grundvelli rannsóknarhagsmuna í gær áður en fyrri gæsluvarðhaldsúrskurður yfir manninum rann út. Héraðsdómur féllst á þá kröfu.

Líkt og Fréttablaðið sagði frá á þriðjudag barst lögreglu kæra á hendur manninum í síðustu viku frá ungum manni um tvítugt. Brot mannsins eru sögð hafa staðið yfir um nokkurra ára skeið er pilturinn var barn og unglingur.

Lögregla handtók manninn í kjölfar kæru piltsins og gerð var húsleit á heimili hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×