Innlent

Flugdólgur sem reyndi að efna til stimpinga handtekinn

Birgir Olgeirsson skrifar
Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð.
Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð. Vísir/Valli
Handtaka þurfti flugfarþega sem kom til landsins fyrr í vikunni vegna óláta hans um borð í flugvélinni á leiðinni hingað. Hinn erlendi ferðamaður hafði látið mjög ófriðlega um borð og reynt að efna til stimpinga við áhafnarmeðlimi og farþega sem reyndu að aðstoða þá.

Þá dreifði hann matarleifum um vélina og skvetti vatni á áhafnarmeðlimi. Lögreglan á Suðurnesjum handtók manninn við komuna til landsins. Var hann færður í fangaklefa og tekin af honum skýrsla.

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni karlmann sem hafði framvísað fölsuðum skilríkjum við komuna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Skilríkjasérfræðingur flugstöðvardeildar LSS úrskurðaði að skilríkin væru grunnfölsuð. Maðurinn kvaðst hafa keypt þau fyrir 500 evrur á diskóteki í Albaníu. Hann var vistaður í fangaklefa og tekin af honum skýrsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×