Tónlist

Ed Sheeran trúlofaður

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ed Sheeran ætti að geta sungið nokkur hugljúf ástarlög til unnustu sinnar, Cherry Seaborn.
Ed Sheeran ætti að geta sungið nokkur hugljúf ástarlög til unnustu sinnar, Cherry Seaborn. Vísir/Getty
Breski söngvarinn Ed Sheeran trúlofaðist kærustu sinni, Cherry Seaborn, skömmu fyrir áramót. Sheeran tilkynnti um trúlofunina á Instagram-reikningi sínum í dag.

„Nældi mér í unnustu rétt áður en nýja árið gekk í garð. Við erum mjög hamingjusöm og ástfangin, og kettirnir okkar eru einnig yfir sig ánægðir,“ skrifaði Sheeran og hengdi mynd af sér og nýbakaðri unnustunni við færsluna, sem sjá má neðst í fréttinni.

Sheeran og Seaborn voru vinir og skólasystkini í nokkur ár áður en þau byrjuðu saman árið 2015. Þá fór Seaborn í heimsreisu með unnusta sínum þegar hann tók sér ársfrí frá tónlistinni árið 2016.

Sheeran hefur verið tíðrætt um ástina í viðtölum upp á síðkastið og sagðist nýlega tilbúinn til þess að eignast börn. Hann hefur jafnframt gert það gott í tónlistinni undanfarin misseri og er tilnefndur í fjórum flokkum á Brit-verðlaunahátíðinni sem haldin verður í febrúar.

Cherry Seaborn er atvinnukona í hokkí og spilaði með U21-árs-liði Englands á Evrópumeistaramótinu árið 2012 þar sem liðið hreppti bronsverðlaun.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.