Sport

Brady í fýlu út í útvarpsmann en vill ekki að hann verði rekinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brady er mættur til Minneapolis og mætti á sinn fyrsta fjölmiðlaviðburð fyrir Super Bowl í nótt.
Brady er mættur til Minneapolis og mætti á sinn fyrsta fjölmiðlaviðburð fyrir Super Bowl í nótt. vísir/getty
Tom Brady hefur verið vikulegur gestur í útvarpsþætti í Boston en í gær neitaði hann að gefa þættinum viðtal þar sem starfsmaður stöðvarinnar hafði talað illa um fimm ára dóttur hans.

Útvarpsmaðurinn, Alex Reimer, var að ræða heimildarmyndina um Brady, Tom vs Time, í öðrum útvarpsþætti á sömu stöð er hann sagði að dóttir Brady væri óþolandi. Það kunni Brady illa að meta. Skiljanlega.

Er hringt var í hann úr útvarpsþættinum sagðist hann í beinni vera ósáttur við þessa hegðun og lagði svo á. Mjög vont fyrir útvarpsmanninn að móðga stærstu íþróttastjörnu Bandaríkjanna sem stöðin var með einstakan aðgang að.

Bjuggust flestir við því að hann yrði rekinn í kjölfarið en stöðin byrjaði á að senda hann í launalaust leyfi út vikuna. Brady bjargaði samt líklega starfi hans í nótt er hann mætti í sín fyrstu viðtöl í Super Bowl-vikunni.

„Ég veit ekki alveg hvað gerðist þarna á útvarpsstöðinni en ég vona að hann verði ekki rekinn. Það vernda allir börnin sín og börnin mín eiga ekki skilið svona gagnrýni. Ég get skilið gagnrýni í minn garð en ekki barnanna,“ sagði Brady og bætti við.

„Það gera allir mistök í sínum störfum og það væri ömurlegt ef líf einhvers myndi breytast mikið út af svona mistökum.“

Super Bowl-leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport næsta sunnudagskvöld. Leikurinn sjálfur hefst klukkan 23.30 en vegleg upphitun hefst í beinni klukkan 22.00.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×