Sex lík hafa fundist í blómakerjum í Toronto Samúel Karl Ólason skrifar 8. febrúar 2018 21:19 Bruce McArthur starfaði sem landslagsarkitekt. Facebook
Lögreglan í Toronto í Kanada hefur fundið leifar sex manna í blómakerjum á landareign þar sem Bruce McArthur hafði afnot af. Hann starfaði sem landslagsarkitekt. Áður hafði lögreglan tilkynnt fund þriggja líka en nú stendur yfir umfangsmikil leit að fleiri fórnarlömbum. McArthur hefur verið ákærður fyrir fimm morð og búist er við því að ákærunum muni fjölga. Aðeins er búið að bera kennsl á leifar eins af fórnarlömbunum sex. Það er Andrew Kinsman sem hvarf í júní í fyrra. Með því að notast við radar og hunda hafa rannsakendur borið kennsl á hluta landeignarinnar þar sem jörðin hefur verið röskuð. Tjaldi hefur verið komið þar yfir og verið er að þýða jörðina með stórum hitablásurum, samkvæmt frétt CBC News.McArthur var handtekinn þann 18. janúar og ákærður fyrir tvö morð. Einhver af fórnarlömbum hans voru reglulegir gestir í skemmtanalífi samkynhneigðra í Toronto. Samfélag hinsegin fólks hafði á síðustu mánuðum vakið athygli á að fjöldi manna sem sóttu hverfið hafi horfið sporlaust.Samkvæmt frétt NBC News er talið að hinn 66 ára gamli McArthur hafi keyrt um Toronto á sendiferðabíl sínum og fundið fórnarlömb sín með þeim hætti og á stefnumótamiðlum samkynhneigðra. Á einum slíkum miðli hafði hann skrifað: „Ég get verið svolítið feiminn þar til ég kynnist þér en inn við hjartað er ég rómantískur.“Blaðamannafundur sem haldinn var í dag.
Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Neitar að hafa orðið föður sínum að bana Innlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Innlent Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Erlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Óljóst hvað Gad Saad er sakaður um í mótmælapóstum Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira