Innlent

Huga betur að persónuvernd í dómabirtingu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stundum eru í dómum atvikalýsingar þar sem er vitnað, jafnvel orðrétt, í trúnaðarsamtöl barna við sálfræðinga og viðtöl í Barnahúsi.
Stundum eru í dómum atvikalýsingar þar sem er vitnað, jafnvel orðrétt, í trúnaðarsamtöl barna við sálfræðinga og viðtöl í Barnahúsi. Vísir/Ernir
Tryggja þarf betur persónuvernd við birtingu dóma sem varða alvarleg brot gegn börnum. Þetta er mat umboðsmanns barna sem ræddi málið við stjórn Dómstólasýslunnar fyrr í vikunni.

„Það sem er alvarlegt við þetta er í fyrsta lagi að það eru dæmi um að nafnhreinsun í alvarlegum brotamálum gagnvart börnum sé óvönduð. Til dæmis að nöfnin eru að mestu tekin út en svo slæðist með nafn á einum stað eða tveimur og þá er nafnhreinsunin náttúrlega til einskis. Síðan er oft ekki hugað að því að taka út staðhætti eða að nöfn á fámennum stöðum eru gefin upp og þá er stundum hægt að rekja málið til einstaklinga. Þá samsvarar það persónugreiningu,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna.

Þriðja atriðið sem Salvör nefnir og segir mjög miklu máli skipta er að stundum eru nákvæmar atvikalýsingar þar sem er vitnað, jafnvel orðrétt, í trúnaðarsamtöl barna við sálfræðinga og viðtöl í Barnahúsi.

„Síðan er þetta birt í fjölmiðlum daginn sem þessir dómar birtast. Þessir dómar fylgja börnunum alla tíð og geta sett mark sitt á líf þeirra fyrir utan það að þau eru þolendur í þessum málum.“

Salvör segir viðfangsefnið ekki nýtt. Fyrri umboðsmaður barna hafi áður getið þess í ársskýrslum. Nú verði málin rædd áfram.

„Við erum að skoða þetta hjá okkur og fara yfir það hvernig þetta er gert í nágrannalöndunum. Svo munum við eiga frekara samtal við Dómstólasýsluna og fleiri sem koma að þessu máli á næstunni. Við erum ekki með fullmótaðar tilögur nákvæmlega um það hvernig eigi að gera þetta en það er það sem við munum fara í núna,“ segir Salvör sem segist hafa mætt miklum skilningi vegna þessa máls hjá stjórn Dómstólasýslunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×