Innlent

Ökumaður á 155 km/klst á Reykjanesbraut

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá Reykjanesbraut.
Frá Reykjanesbraut. Vísir/pjetur
Tíu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 155 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Þá varð umferðaróhapp á Víkurbraut og var ökumaður annarrar bifreiðarinnar fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Lögregla hafði svo afskipti af fáeinum ökumönnum vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum vímuefna. Einn þeirra hafði verið sviptur ökuréttindum og annar sem lögregla hafði afskipti af var með meint kannabis og hníf í fórum sínum.

Að síðustu voru höfð afskipti af ökumanni sem framvísaði erlendu kennivottorði en gat ekki sýnt fram á að hann væri með ökuréttindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×