Innlent

Féll úr fjögurra metra hæð við vinnu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Maðurinn var við vinnu í Sementsafreiðslunni í Keflavík.
Maðurinn var við vinnu í Sementsafreiðslunni í Keflavík. Vísir/Eyþór
Vinnuslys varð í Sementsafgreiðslunni í Keflavík í vikunni þegar starfsmaður féll úr fjögurra metra hæð og hlaut höfuðáverka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Maðurinn var að spúla tank sementsbifreiðar þegar óhappið varð. Á tanki bifreiðarinnar er göngubretti með handriði og svo virtist sem maðurinn hafi fallið fram af því.

Hann var fluttur af vettvangi með sjúkrabifreið og Vinnueftirlitinu gert viðvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×