Innlent

Eldurinn kom upp í Airbnb húsnæði

Gissur Sigurðsson og Hulda Hólmkelsdóttir skrifa
Slökkviliðið tjaldaði öllu sem til er, enda logaði eldurinn í húsi í viðkvæmu hverfi.
Slökkviliðið tjaldaði öllu sem til er, enda logaði eldurinn í húsi í viðkvæmu hverfi. Vísir/Hanna
12 manns var í nótt bjargað af svölum brennandi húss við Laugaveg 40. Einn var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun eftir að hafa reynt að fara út í gegnum stigagang hússins. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang, en eldsupptök voru í kjallara hússins.

Slökkviliðið tjaldaði öllu sem til er, enda logaði eldurinn í húsi í viðkvæmu hverfi.

„Aðkoman var í sjálfu sér ekki glæsileg þegar við komum. Þetta er svona Airbnb eining og þarna voru tólf manns á einhverjum fimm svölum komnar út,“ segir Þorvaldur Geirsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu í samtali við fréttastofu.

„Það var ein manneskja sem ætlaði að reyna að fara stigaganginn en það var það mikill reykur að hún hefur snert af reykeitrun og komst út á svalir aftur og við fluttum hana upp á spítala.“

Fjöldahjálparmiðstöð í strætisvagni

Aðrir einstaklingar fengu aðhlynningu hjá Rauða krossinum sem setti upp fjöldahjálparstöð í strætisvagni.

„Þegar reykkafararnir komust að þessu þá hafði heitavatnsrör farið í sundur og náð að slökkva í rafmagnstöflunni. Mesta vinnan okkar eftir þetta, það var svona í tvo tíma, var að reyklosa kjallarann.“

Einhver reykur fór inn í íbúðirnar en þar sem fólk hafi verið komið út á svalir hafi verið auðvelt að koma því skjól.

„Fólkið var mjög rólegt og þetta gekk allt mjög vel en við vorum lengi að reyklosa. þetta er kjallaraými og fullt af göngum og geymslum.“

En barst engin eldur inn í þjónusturýmin sem eru þarna á götuhæðinni?

„Nei, það er ein verslun þarna á götuhæðinni, sem að reykur fór inn í lyftustokk og hún fylltist af reyk. Það var eina rýmið sem við þurftum að reyklosa fyrir utan kjallarann og stigahúsið. Stigahúsið var vel fullt af reyk.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×