Enski boltinn

Sjáðu Michael Owen og Robbie Fowler skora fyrir Liverpool um helgina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Robbie Fowler, Steve McManaman og Michael Owen fagna um helgina.
Robbie Fowler, Steve McManaman og Michael Owen fagna um helgina. Vísir/Getty
Michael Owen og Robbie Fowler eru tveir af mestu markaskorunum í sögu Liverpool en það er orðið langt síðan þeir spiluðu með liðinu.

Michael Owen og Robbie Fowler klæddust hinsvegar báðir búningi Liverpool um helgina og voru að sjálfsögðu á skotskónum.

Owen og Fowler komu báðir ungir inn í aðallið Liverpool og tóku strax upp á því að raða inn mörkum. Þeir eru eins og er í 6. sæti (Robbie Fowler, 183) og 8. sæti (Michael Owen, 158) yfir mestu markaskorarana í sögu Liverpool.

Það var mjög gaman hjá þeim félögum á Anfield um helgina og líka frábært fyrir stuðningsmenn Liverpool að sjá þá aftur í Liverpool-búningnum.

Liverpool mætti þá Bayern Münhcen í svokölluðum LFC Legends leik en með báðum liðum spiluðu gamlar goðsagnir.

Michael Owen og Robbie Fowler voru allt í öllu í byrjun leiks þegar Liverpool-liðið komst í 3-0 en fyrsta mark leiksins skoraði Hollendingurinn Dirk Kyut eftir sendingu frá Owen.

Robbie Fowler skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum og Owen eitt en Liverpool missti niður forystuna fyrir hlé. Fowler, sem þurfti mun stærri búning en þegar lék síðast með liðinu, var augljóslega búinn á því eftir fjöruga byrjun.

Xabi Alonso lék með báðum liðum í leiknum en hann átti frábær ár hjá Liverpool og endaði ferilinn síðan hjá Bayern München. Xabi Alonso skoraði eitt mark Bayern í 5-5 jafntefli.

Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegar svipmyndir frá þessum skemmtilega leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×