Innlent

Brotist inn í fyrirtæki í austurborginni

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Töluverður erill var hjá lögreglu í nótt.
Töluverður erill var hjá lögreglu í nótt. Vísir/Eyþór
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot í austurhluta borgarinnar laust fyrir miðnætti í gær. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Talsvert var um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna í umdæminu og voru níu ökumenn stöðvaðir vegna þessa. Þrír sem voru stöðvaðir reyndust ekki með ökuskírteini. Einn ökumaðurinn hafði aldrei öðlast slík réttindi, annar hafði gleymt að endurnýja réttindin og sá þriðji hafði verið sviptur ökuréttindum sínum vegna fyrri afskipta lögreglu. 

Lögregla hafði einnig afskipti af einstakling sem grunaður var um vörslu fíkniefna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×