Bíó og sjónvarp

Bachelor-parið segir frá Íslandsdvölinni: Eins og að vera á „annarri plánetu“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Piparsveinnin Arie Luyendyk og unnusta hans, Lauren Burnham, bera Íslandi vel söguna.
Piparsveinnin Arie Luyendyk og unnusta hans, Lauren Burnham, bera Íslandi vel söguna. Instagram/Lauren Burnham
Umdeildasta Bachelor-par síðari ára, piparsveinnin Arie Luyendyk og unnusta hans, Lauren Burnham, fóru fögrum orðum um nýafstaðna Íslandsferð sína í viðtali við bandaríska tímaritið People.

Parið heimsótti Ísland fyrr í mánuðinum eftir að tökum á nýjustu þáttaröð Bachelor-þáttanna lauk. Þau sáust m.a. spóka sig á Laugaveginum í miðbæ Reykjavíkur og skoðuðu þar fatnað í Cintamani.

Sjá einnig: Óvæntustu endalok allra tíma í The Bachelor

Luyendyk og Burnham sögðu frá ferðalaginu í viðtali við People á dögunum en þau ferðuðust um Ísland og héldu þar næst til spænsku borgarinnar Barselóna.

„Við tókum bíl á leigu og keyrðum um allt Ísland og ég verð að segja að það var eitt af því sem okkur fannst best við ferðina. Íslenska landslagið lætur þér líða eins og þú sért á annarri plánetu,“ sagði Burnham.

Hún nefndi einnig fleiri atvik sem hafa verið henni minnisstæð úr ferðinni, þ.á.m. stund sem parið átti saman við foss og þegar unnustinn keyrði bílaleigubíl þeirra hratt í íslenska snjónum.

 
Cold hands, warm hearts.

A post shared by Lauren Burnham (@laureneburnham) on Mar 14, 2018 at 2:44pm PDT

Samband Luyendyk og Burnham hefur verið umdeilt en piparsveinninn hóf upphaflega samband með annarri konu sem kepptist um hylli hans í þáttunum, Beccu Kufrin. Luyendyk fékk þó fljótlega bakþanka og í lokaþáttinum sleit hann sambandi sínu og Kufrin, skellti sér á skeljarnar og bað Burnham um að giftast sér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.