Bíó og sjónvarp

Frumsýning: Fyrsta stikla úr Vargi ógnvekjandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Íslenska spennumyndin Vargur er fyrsta mynd Barkar Sigþórssonar.
Íslenska spennumyndin Vargur er fyrsta mynd Barkar Sigþórssonar. RVK Studios
RVK Studios og Baltasar Kormákur ætla frumsýna spennumyndina Vargur eftir leikstjórann Börk Sigþórsson í byrjun næsta mánaðar og frumsýna því í tilefni af því fyrstu stikluna úr kvikmyndinni hér á Vísi.

Vargur er fyrsta kvikmynd Barkar í fullri lengd, en hann er þó enginn nýgræðingur og hefur áður getið sér gott orð fyrir verðlaunastuttmyndir sínar og sem einn af leikstjórum Ófærðar.

Myndin verður frumsýnd 4. maí en hér að neðan má sjá stikluna.

Með aðalhlutverk fara þeir Gísli Örn Garðarsson og Baltasar Breki Samper, en þeir leika bræður sem báðir eru í bráðum fjárhagsvanda, af ólíkum ástæðum þó.

Annar þarf að koma sér undan handrukkurum vegna fíkniefnaskuldar, en hinn hefur dregið sér fé á vinnustað til að fjármagna dýran lífsstíl. Saman ákveða þeir að grípa til ólöglegra aðgerða til að koma sér á réttan kjöl.

Baltasar Breki og Gísli Örn leika bræður sem taka höndum saman á vafasaman máta.RVK Studios
Aðalkvenhlutverkin eru síðan í höndum tveggja erlendra leikkvenna.

Pólska leikkonan Anna Próchniak leikur burðardýr bræðranna og danska leikkonan Marijana Jankovic leikur rannsóknarlögreglukonu, en þess má geta að hún lét ekki nýtt tungumál vefjast fyrir sér og talar íslensku í myndinni.

Marijana Jankovic í hlutverki sínu.RVK Studios
Hér má sjá lista yfir helstu aðstandendur myndarinnar:

Handrit og leikstjórn: Börkur Sigþórsson

Framleiðendur: Baltasar Kormákur og Agnes Jóhansen

Meðframleiðendur: Magnús Viðar Sigurðsson, Jessica Petelle, Börkur Sigþórsson

Með helstu hlutverk fara Gísli Örn Garðarsson, Baltasar Breki Samper, Anna Próchniak, Marijana Jankovic, Rúnar Freyr Gíslason og Ingvar E. Sigurðsson

Kvikmyndataka: Bergsteinn Björgúlfsson

Klipping: Elísabet Ronaldsdóttir og Sigvaldi J. Kárason

Tónlist: Ben Frost

Leikmynd: Heimir Sverrisson

Hljóðhönnun Huldar Freyr Arnarsson

Hár og förðun: Kristín Júlla Kristjánsdóttir

Búningar: Ellen Loftsdóttir

Framkvæmdastjórn á tökustað: Eiður Birgisson

Aðstoðarleikstjóri: Harpa Elísa Þórsdóttir


Tengdar fréttir

Stór nöfn í stuttmynd Barkar

Börkur Sigþórsson gerir áhugaverða stuttmynd eftir handriti Stuart Beattie. Í aðalhlutverki er Björn Thors sem leikstjórinn segir að sé besti leikari sinnar kynslóðar.

Skaði sigraði - Tales of a Sea Cow fékk sérstaka viðurkenningu

Íslenska stuttmyndinn Skaði í leikstjórn Barkar Sigþórssonar fékk verðlaunin Besta íslenska stuttmyndin en verðlaunin, GoPro HD Hero Kit, voru veitt við hátíðlega athöfn á miðvikudagskvöldið á Reykjavík Shorts & Docs hátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.