Innlent

Ollu usla í Bæjarhrauni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ölvun setti svip sinn á Bæjarhraun í gærkvöldi.
Ölvun setti svip sinn á Bæjarhraun í gærkvöldi. Vísir/STEFÁN
Tveir ölvaðir ökumenn voru til vandræða með stuttu millibili í Bæjarhrauni í Hafnarfirði í gærkvöldi.

Annar þeirra, ung kona, reyndi að keyra af vettvangi eftir að hafa lent í samstuði við aðra bifreið. Það tókst þó ekki betur en svo að hún ók á gangandi vegfaranda áður en hún stakk af. Lögreglan hafði hendur í hári hennar skömmu síðar eftir að hafa þurft að hlaupa hana uppi. Áður hafði hún ekið á lögregubifreið og er því afbrotalisti hennar nokkuð langur eftir gærkvöldið. Í skeyti lögreglunnar er hann tíundaður:

„Konan er grunuð um: umferðaróhapp / eignatjón, afstungu frá vettvangi, aka á gangandi, ölvun við akstur, akstur án réttinda þ.e. svipt ökuréttindum, of hraðan akstur miðað við aðstæður, forgangur ekki virtur, ekki farið að fyrirmælum lögreglu ofl,“ eins og lögreglan orðar það.

Konan hefur mátt sofa úr sér vímuna í fangageymslu lögreglunnar í nótt.

Hinn ölvaði ökumaðurinn hafði þrjú börn meðferðis. Lögreglu barst fyrst tilkynning um manninn þegar hann var í þann mund að setja börnin inn í bifreið. Að sögn lögreglunnar reyndi einstaklingurinn sem tilkynnti um málið hvað hann gat til að hindra manninn í að aka af stað.

Það virðist hafa tekist því maðurinn og börnin voru komin út úr bifreiðinni þegar lögreglan mætti á vettvang skömmu fyrir klukkan 20 í gærkvöldi. Börnin eru sögð hafa verið illa klædd og að kalt hafi verið í veðri. Málið var afgreitt með aðstoð Barnaverndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×