Tæknirisinn Amazon þvertekur fyrir að hlera samtöl viðskiptavina sinna. Tilefnið er umsókn fyrirtækisins um einkaleyfi á sérstakri tækni, sem byggir á því að hlusta eftir ákveðnum stikkorðum í téðum samtölum. Þessi stikkorð verði svo hægt að nota til að beina sérsniðnum auglýsingum að notendum. BBC greinir frá.
Umræddum algrími (e. algorithm) er lýst í einkaleyfisumsókninni. Í henni er gert ráð fyrir að hægt verði að hlusta á samræður notenda og safna þannig upplýsingum um þá. Þegar fréttir bárust af umsókninni veltu sérfræðingar því fyrir sér hvort koma ætti hinni nýju tækni fyrir í Echo-hátölurum Amazon, sem eru raddstýrðir og því útbúnir hljóðnemum.
Sjá einnig: Óhugnanlegur hlátur Alexu hræðir notendur
Í umsókninni segir enn fremur að algrímið myndi nýta sér „stikkorð“ á borð við „mér líkar“ og „ég elska“ til að sigta út hluti sem eru notendum hugleiknir. Þessir hlutir yrðu svo notaðir í sérsniðnar auglýsingar handa hverjum notanda fyrir sig.
Amazon hefur hins vegar gefið það út að fyrirtækið nýti sér ekki tækni til að hlera samtöl viðskiptavina sinna. Þá segir einnig í yfirlýsingu að Amazon „taki persónuvernd alvarlega“ og að umsóknir um einkaleyfi „endurspegli ekki endilega vöruþróun innan fyrirtæksins á þessum tímapunkti.“
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, þurfti að svara fyrir sambærilegt mál frammi fyrir þingnefnd Bandaríkjaþings í gær en þingmaðurinn Gary Peters spurði hann hvort fyrirtækið hleraði samtöl notenda sinna í auglýsingaskyni.
Í svari Zuckerberg kom fram að um væri að ræða þráláta samsæriskenningu. Hann, líkt og talsmenn Amazon, þvertók fyrir að hlusta á samtöl notenda.
Viðskipti erlent