Erlent

Fleiri heimilisofbeldismál eftir breytingu í Rússlandi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hægt er að ljúka fyrsta máli um heimilisofbeldi með sekt.
Hægt er að ljúka fyrsta máli um heimilisofbeldi með sekt. Vísir/Getty
Skráð heimilisofbeldismál í Rússlandi hafa nær þrefaldast á stuttum tíma. Ástæðan er talin löggjöf sem afnam fangelsisrefsingu við fyrsta broti. Sektað er í staðinn.

Lagabreytingin tók gildi síðasta vor og mætti umtalsverðri andstöðu. Andstæðingar breytinganna töldu að með lögunum væru stjórnvöld að veita leyfi fyrir slíku ofbeldi. Fylgjendur þess stóðu hins vegar fast á sínu og fór breytingin í gegn.

Sem fyrr segir fól breytingin í sér að þeir sem gerast brotlegir í fyrsta sinn geta lokið sínu máli með greiðslu sektar. Gerist menn hins vegar ítrekað brotlegir bíður þeirra ákæra og sakamál fyrir dómi.

„Breytingarnar tóku gildi í fyrra og þótt undarlegt megi virðast þá hefur skráðum heimilisofbeldismálum fjölgað í kjölfarið,“ segir Ekaterina Khodzhaeva, doktor í félagsfræði, við Al Jazeera.

„Eins og málum var háttað áður gat það haft áhrif á framtíð barna og fjölskyldu þolandans að hafa skráð mál hans. Það fældi fólk frá því að leita til lögreglunnar. Þessi nýja framkvæmd hefur breytt þessu og fjölgað tilkynntum málum,“ segir Khodzh­aeva. Vísar hún í því samhengi til þess að á fyrri helmingi ársins í fyrra hafi tilkynningar þrefaldast.

Andstæðingar laganna telja þau enn skaðsöm og vilja ákvæði um nálgunarbann í rússnesk lög.

„Aðgerðir á borð við nálgunarbann eru ekki refsing gagnvart gerandanum heldur tímabundnar aðgerðir til að koma í veg fyrir frekara ofbeldi og til verndar þolendum,“ segir Oksana Pushkina, rússneskur þingmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×