Innlent

Bein útsending: Oddvitar stærstu framboðanna í Reykjavík mætast

Samúel Karl Ólason skrifar
Þátt taka, Dagur B. Eggertsson, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Eyþór Arnalds, Ingvar Jónsson, Líf Magneudóttir, Vigdís Hauksdóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.
Þátt taka, Dagur B. Eggertsson, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Eyþór Arnalds, Ingvar Jónsson, Líf Magneudóttir, Vigdís Hauksdóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Vísir/Vilhelm
Oddvitar stærstu framboðanna í Reykjavík mætast á opnum fundi í Gamla bíó sem hefst klukkan 8:30. Sýnt verður frá fundinum í beinni útsendingu. Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu boðuðu til fundarins þar sem rætt verður um sambúð borgar og atvinnulífs.

Þátt taka, Dagur B. Eggertsson, Samfylkingunni, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Pírötum, Eyþór Arnalds, Sjálfstæðisflokknum, Ingvar Jónsson, Framsóknarflokknum, Líf Magneudóttir, Vinstri-grænum, Vigdís Hauksdóttir, Miðflokknum og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Viðreisn.

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ, Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI spyrja frambjóðendur um helstu stefnumál þeirra gagnvart atvinnulífinu en Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, stýrir fundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×