Innlent

Rán í verslun við Miklubraut

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Maðurinn ógnaði starfsmanni með sprautunál.
Maðurinn ógnaði starfsmanni með sprautunál.
Lögreglan rannsakar nú rán sem framið var skömmu fyrir klukkan fimm í morgun. Í skeyti lögreglunnar til fjölmiðla kemur fram að einstaklingur hafi gengið inn í verslun við Miklubraut og ógnað þar starfsmanni með nál.

Starfsmaðurinn er sagður hafa verið samvinnuþýður en ræninginn er þó einungis talinn hafa haft „lítilræði upp úr krafsinu.“ Málið er sem fyrr segir til rannsóknar.

Um tveimur klukkustundum áður hafði lögreglunni verið tilkynnt um innbrot í verslun í Breiðholti. Ekki fylgir sögunni hverju var stolið en það málið er jafnframt til rannsóknar. Ekki er vitað á þessari stundu hvort ránið og innbrotið tengist með nokkrum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×