Innlent

Á ofsahraða með fjögur börn í aftursætinu á ótryggðum bílaleigubíl

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ökumaðurinn situr uppi með 150 þúsund krónu sekt
Ökumaðurinn situr uppi með 150 þúsund krónu sekt Vísir/vilhelm
Lögreglan á Norðurlandi vestra stöðvaði í dag erlendan ferðamann sem var á ferð um umdæmi lögreglunnar. Ók hann bílaleigubíl á 137 kílómetra hraða, með fjögur börn í aftursætum bílsins sem var að auki ótryggður.

Voru skráningarnúmerin klippt af bílnum og fólkinu komið í húsaskjól „hvar þau voru í sambandi við bílaleiguna frekar óhress,“ að því er segir í Facebook-færslu lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

Ökumaðurinn situr uppi með 150 þúsund krónu sekt en í dag tók í gildi ný reglugerð þar sem sektir vegna ýmsa umferðarlagabrota voru hækkaðar umtalsvert, þar með talið fyrir hraðaakstur.

Alls voru 32 ökumenn stöðvaðir í umdæmi lögreglunnar vegna hraðaksturs í dag og segir í Facebook-færslu lögreglunnar að allir íslenskir ökumenn sem stöðvaðir voru hafi verið meðvitaðir um hinar hækkuðu sektir sem tóku gildi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×