Stórmótameistarinn Iniesta 1. maí 2018 10:30 Iniesta fagnar marki sínu í úrslitaleik HM 2010. Vísir/Getty
Þegar fjórar mínútur voru eftir af framlengingu í úrslitaleik HM 2010 töpuðu Hollendingar boltanum við vítateig Spánverja sem sneru strax vörn í sókn. Jesús Navas fékk boltann, lék á Rafael van der Vaart og hélt áfram för sinni upp hægri kantinn. Navas missti boltann en hann barst til Andrés Iniesta sem gaf hælsendingu á Cesc Fábregas sem gaf strax á Navas. Hann færði boltann yfir til vinstri á Fernando Torres. Hann sendi boltann inn á teiginn, Van Der Vaart reyndi í örvæntingu sinni að bjarga en boltinn fór af honum til Fábregas. Hann laumaði boltanum til hægri á Iniesta sem lagði hann fyrir sig og skoraði með hnitmiðuðu skoti á lofti í fjærhornið. Iniesta ærðist af gleði og reif sig úr treyjunni. Undir henni var hann í bol sem á stóð „Dani Jarque siempre con nosotros", til minningar um fyrirliða Espanyol sem lést ári áður, aðeins 26 ára að aldri. Þeir Iniesta voru miklir vinir og samherjar í yngri landsliðum Spánar. Með markinu skrifaði Iniesta nafn sitt með gylltu letri í fótboltasögu Spánar enda tryggði hann Spánverjum sinn fyrsta heimsmeistaratitil með því. Þessi hægláti miðjumaður er ekki mikill markaskorari en þegar hann skorar eru mörkin oftar en ekki mikilvæg. Enginn stuðningsmaður Barcelona mun gleyma markinu gegn Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu 2009. Það er komið að tímamótum á glæsilegum ferli Iniesta. Á blaðamannafundi í gær tilkynnti hann með tárin í augunum að þetta tímabil yrði hans síðasta hjá Barcelona, félaginu sem hann hefur spilað með allan sinn feril. Leikirnir eru tæplega 700 og titlarnir 31, og bráðum 32 því Barcelona á Spánarmeistaratitilinn vísan. Allar líkur eru á því að HM 2018 í Rússlandi verði svanasöngur Iniesta með spænska landsliðinu. Og það er viðeigandi að hann kveðji á stórmóti, á sviðinu þar sem honum líður best. Iniesta lék sinn fyrsta landsleik í aðdraganda HM 2006 og var tekinn með til Þýskalands. Spánverjar litu vel út í riðlakeppninni en féllu úr leik fyrir Zinedine Zidane og félögum í franska landsliðinu í 16-liða úrslitum. Á þessum árum höfðu Spánverjar þann stimpil á sér að skreppa saman á stórmótum þegar allt var undir. Á EM 2008 breyttist allt. Spánn tapaði ekki leik á mótinu og varð Evrópumeistari eftir sigur á Þýskalandi í úrslitaleik. Það var upphafið að ótrúlegri sigurgöngu „La Roja", eða þeirra rauðu. Spánverjar drottnuðu yfir heimsfótboltanum á árunum 2008-12. Þeir léku m.a. 35 leiki án þess að tapa og unnu þrjá titla. Eins og áður sagði varð Spánn heimsmeistari 2010 og spænska liðið varði Evrópumeistaratitilinn tveimur árum síðar. Spánverjar lágu undir gagnrýni fyrir varfærinn leikstíl á EM 2012 en í úrslitaleiknum hristu þeir af sér hlekkina og unnu Ítali 4-0. Iniesta var valinn maður leiksins og besti leikmaður mótsins. Hann er eini leikmaðurinn í sögunni sem hefur verið valinn maður leiksins í úrslitaleik HM, EM og Meistaradeildarinnar. Spánverjar ollu miklum vonbrigðum á HM 2014 þar sem þeir féllu út í riðlakeppninni. Iniesta sýndi þó lit og hann var einnig besti leikmaður spænska liðsins á EM 2016. Þar strandaði Spánn á Ítalíu í 16-liða úrslitunum. Eftir EM tók Julen Lopetegui við stjórn spænska liðsins og undir hans stjórn hafa Spánverjar verið óstöðvandi. Frá tapinu fyrir Ítalíu hefur Spánn leikið 18 leiki, unnið 13 og gert fimm jafntefli. Markatalan er 59-12. Spánverjar unnu m.a. Ítali 3-0 í undankeppni HM og slátruðu Argentínumönnum, 6-1, í vináttulandsleik í síðasta mánuði. Þótt Lopetegui hafi úr ótrúlegum fjölda góðra leikmanna að velja er Iniesta enn í lykilhlutverki hjá spænska liðinu, eins og síðasta rúma áratuginn. Þessi frægasti sonur þorpsins Fuentealbilla kveður Barcelona með tveimur titlum og vill einnig að landsliðsferilinn fái svipaðan endi.
Birtist í Fréttablaðinu Fótbolti Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Fleiri fréttir Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Sjá meira