Fótbolti

ÍA með þriðja sigurinn í röð

Einar Sigurvinsson skrifar
Úr leik ÍA síðasta sumar
Úr leik ÍA síðasta sumar vísir/andri
ÍA sigraði Þór í þriðju umferð Inkasso-deild karla í fótbolta í dag. Leikurinn fór fram á Akureyri og lauk með 1-0 sigri Skagamanna.

Eina mark leiksins skoraði  Steinar Þorsteinsson snemma í síðari hálfleik.

Að þremur umferðum lokum er ÍA með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. Þór situr hinsvegar í neðri hluta deildarinnar með eitt stig eftir þrjá leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×