Innlent

Hæna í haldi lögreglu

Samúel Karl Ólason skrifar
Hænan umrædda.
Hænan umrædda. Lögeglan á Norðurlandi eystra
Lögreglan á Norðurlandi eystra birti í dag mynd af hænu sem hafi litið við hjá þeim á Akureyri. Ekki liggur fyrir hvort hún hafi verið mætt til lögreglu til að tilkynna glæp en lögreglan spyr hvort einhver sakni hennar. Í dag er frídagur og var mikið um skemmtanahald víða um landið í gær. Leiða má líkur að því að einhversstaðar hafi gamanið farið úr böndunum.



Á mynd sem lögreglan birti á Facebook má sjá að hænan er í kassa og fylgir ekki sögunni hvernig hún komst í kassann, sem er án efa eitt það forvitnilegasta við þetta dularfulla mál.

Þeir sem kannast við hænuna geta sett sig í samband við lögregluna og vitjað hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×