Innlent

Ölvunarakstur alþekktur í Kjósinni

Jakob Bjarnar skrifar
Á kjördag hitti Bubbi einn sem mætti slompaður á kjörstað á bílnum til að kjósa.
Á kjördag hitti Bubbi einn sem mætti slompaður á kjörstað á bílnum til að kjósa. visir/anton Brink
Bubbi Morthens greinir frá því á Facebooksíðu sinni að í Kjósinni, hvar hann býr, tíðkist það að tilteknir einstaklingar aki um drukknir undir stýri. Hann rekur þetta til meðvirkni.

Allir vita um þetta

„Í sveitinni tala allir um þetta og segja: Við verðum að gera eitthvað í þessu. Og sumir hafa sagt: Ja, við höfum talað við hann þennan og beðið hann að vera ekki að keyra drukkinn. En það hefur ekki dugað,“ segir Bubbi í allöngum pistli hvar hann segist óttast um sig og sína vegna þessa ástands; ölvunar- og hraðaksturs við heimili sitt.

Bubbi segist ekki vilja nefna viðkomandi á nafn og hafnar því að það leiði til þess að allir í Kjósinni liggi undir grun um ölvunarakstur. Hann segist heldur ekki geta setið fyrir þeim sem þetta stunda. Og Bubbi nefnir nýlegt dæmi um nákvæmlega þetta sem hann tíundar í pistli sínum.

Bubbi hitti slompaðan ökumann

„Á kjördag hitti ég einn slompaðan komandi á bílnum til að kjósa. Og í meðvirkni minni lét ég það ógert að gera eitthvað í málinu.“

Og svo sat ég heima og bölvaði sjálfum mér fyrir kjarkleysið.

Bubbi bindur við það vonir að pistillinn leiði til þess að ættingjar og vinir þeirra sem þetta stunda grípi í taumana.

„Kannski er ég að vona að allir sem lesa þetta og vita um fólk sem sest drukkið eða undir áhrifum undir stýri stöðvi viðkomandi. Ég get bara ekki lengur látið nægja að tala um þetta í eldhúsum í sveitinni. En út af því hvað þetta er lítið samfélag hér þá eru allir að drepast úr meðvirkni og á endanum er sá möguleiki að einhver slasist eða verði drepinn vegna þess að við erum of náin í þessu litla samfélagi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×