Íslenski boltinn

Víkingar fyrstir til að vinna ÍA

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Úr leik ÍA og Víkings síðasta sumar
Úr leik ÍA og Víkings síðasta sumar Vísir/Hanna Andrésdóttir
Víkingur Ólafsvík varð fyrsta liðið til þess að vinna ÍA í Inkasso deild karla þetta sumarið. Leiknir sigraði Þrótt í Reykjavíkurslag og Haukar burstuðu ÍR.

ÍA og Víkingur féllu úr Pepsi deild karla síðasta haust. ÍA hefur byrjað mótið í Inkassodeildinni frábærlega og er í harðri baráttu við HK um toppsætið. Vikingar blönduðu sér heldur betur í baráttuna með sigri í Ólafsvík í kvöld.

Alexander Helgi Sigurðarson kom heimamönnum yfir strax á 15. mínútu með glæsimarki fyrir utan teiginn. Seinna mark Víkings var ekki verra, Gonzalo Zamaro lyfti boltanum yfir Árna Snæ Ólafsson í marki ÍA. Gonzalo var svo hársbreidd frá því að bæta við þegar skot hans fór í slánna og niður örfáum mínútum seinna.

Í uppbótartíma seinni hálfleiks náðu Skagamenn að minnka muninn með marki frá Steinari Þorsteinssyni. Það dugði hins vegar ekki til og 2-1 sigur Víkings raunin.

Sævar Atli Magnússon skoraði bæði mörk Leiknis sem sótti Þrótt heim á Eimskipsvöllinn í Laugardal. Fyrra markið kom á 18. mínútu eftir sendingu frá Sólon Breka Leifssyni. Það seinna gerði Sævar þegar liðið var á seinni hálfleik þegar hann skaut á milli fóta varnarmanns Þróttar og í netið.

Leikurinn fór úr öskunni í eldinn fyrir Þrótt undir lokinn þegar Aron Þórður Albertsson fékk að líta rauða spjaldið að því virtist fyrir munnsöfnuð.

Með sigrinum fer Leiknir fjórum stigum frá fallsæti þar sem ÍR situr sem fastast eftir stórtap fyrir Haukum í Breiðholtinu.

Haukar gerðu tvö mörk strax í upphafi leiks sem gerðu ÍR-ingum erfitt fyrir. Haukur Ásberg Hilmarsson gerði fyrsta markið á 15. mínútu og Elton Barros tvöfaldaði forystuna úr víti þremur mínútum seinna.

Arnar Aðalgeirsson bætti við á 64. mínútu og Alexander Helgason gerði svo út um leikinn á 74. mínútu. Lokatölur 4-0 sigur Hauka.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×