Innlent

Hald lagt á tæp þrjú kíló af kókaíni við rann­sókn á um­fangs­miklu fíkni­efna­máli

Að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu er rannsókn málsins á lokastigi, en hún hefur verið unnin í samvinnu við löggæsluyfirvöld í Þýskalandi og Bandaríkjunum, auk Europol.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu er rannsókn málsins á lokastigi, en hún hefur verið unnin í samvinnu við löggæsluyfirvöld í Þýskalandi og Bandaríkjunum, auk Europol. vísir/hanna
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við tollayfirvöld, hefur undanfarnar vikur haft til rannsóknar umfangsmikið fíkniefnamál, sem varðar innflutning á tæpum þremur kílóum af kókaíni.

Fimm einstaklingar voru handteknir í síðasta mánuði í þágu rannsóknarinnar og úrskurðaðir í gæsluvarðhald, en einn er enn í haldi lögreglu á grundvelli almannahagsmuna. Þá sæta tveir mannanna farbanni. Fimmmenningarnir, fjórir karlar og ein kona, eru allir af erlendu bergi brotnir.

 

Að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu er rannsókn málsins á lokastigi, en hún hefur verið unnin í samvinnu við löggæsluyfirvöld í Þýskalandi og Bandaríkjunum, auk Europol. Hraðflutningafyrirtækið DHL hefur einnig veitt aðstoð við rannsókn málsins.

Um nokkuð viðamiklar aðgerðir var að ræða og þakkar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu öðrum lögregluembættum á landinu fyrir veitta aðstoð í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×