Franskir slátrarar vilja vernd fyrir herskáum grænkerum Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2018 23:12 Veganismi hefur átt vaxandi vinsælda að fagna, ekki aðeins hjá dýravinum heldur einnig þeim sem vilja hjálpa til við að berjast gegn loftslagsbreytingum á jörðinni. Vísir/EPA
Samtök franskra slátrara hafa ritað ríkisstjórn landsins þar sem þau óska eftir vernd fyrir herskáum grænkerum sem þau saka um að reyna að ganga af kjötáti í landinu dauðu. Ráðist hafi verið á kjötbúðir víða um Frakkland að undanförnu. Þrátt fyrir að grænmetisætur og grænkerar séu aðeins lítið brot af frönsku þjóðinni varar Jean-Francois Guihard, formaður samtaka slátrara, við því að þeir vilji þröngva lífsstíl sínum og jafnvel hugmyndafræði upp á meginþorra fólks. Fullyrðir hann að gerviblóði hafi verið skvett á fimmtán kjötbúðir í landinu og slagorð gegn kjötáti hafi verið krotuð eða límd á þær. Líkir hann árásunum við hryðjuverk. „Þetta er ótti sem þetta fólk reynir að vekja í þeim tilgangi sínum að láta heilan hluta af franskri menningu hverfa,“ segir Guihard sem sakar fjölmiðla um að hafa gert of mikið úr lífsstíl grænkera. Dregið hefur úr sölu á kjöti í Frakklandi undanfarið, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Bændasamtök hafa krafið ríkisstjórnina um að koma í veg fyrir aðgerðir sem þau telja að gangi gegn kjötáti. Þannig vilja þau að hætt verði að nota hugtök eins og „steik“, „lund“, „beikon“ og „pylsa“ um vörur sem ekki eru unnar úr kjöti.
Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Hálft landið án rafmagns Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Erlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Fleiri fréttir Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Sjá meira