Innlent

Tekinn á 155 km hraða á Grindavíkurvegi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hámarkshraði á Grindavíkurvegi er 90 km/klst.
Hámarkshraði á Grindavíkurvegi er 90 km/klst. Vísir/Eyþór
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum kært tuttugu ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 155 km hraða á Grindavíkurvegi þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Þá voru fáeinir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Loks voru höfð afskipti af rúmlega þrítugum ökumanni sem reyndist aldrei hafa öðlast ökuréttindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×