Skipta flugeldum út fyrir dróna Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. júlí 2018 09:36 Fljúga gráu drónarnir, fyrir utan glugga. Vísir/getty
Bæjaryfirvöld í Aspen munu ekki bjóða upp á árlega flugeldasýningu í tilefni þjóðhátíðardags Bandaríkjanna, sem er í dag. Þau óttast að flugeldarnir kunni að valda skógareldum, en miklir þurrkar hafa leikið Colorado grátt síðustu vikur. Þess í stað verður blásið til heljarinnar drónasýningar þar sem 50 fjarstýrð flygildi verða notuð til að lýsa upp næturhimininn. Brunavarnir Colorado hafa bannað fólki að kveikja elda í vesturhluta ríkisins, af ótta við að þeir kunni að breiðast út í þurru grasinu. „Við þurftum því að finna einhvern annan hápunkt fyrir hátíðarhöldin, þannig að við ákváðum að vera með drónasýningu. Þetta ætti að heppnast, þetta er svolítið nýmóðins,“ er haft eftir talsmanni hátíðarinnar á vef breska ríkisútvarpsins. Hann útilokar ekki að bæjaryfirvöld þurfi að grípa til þess ráðs aftur á næstu árum, fari svo að þurrkarnir í ríkinu séu komnir til að vera. Drónasýningar eru sífellt að verða vinsælli á mannamótum. Á Vetrarólympíuleikunum í upphafi þessa árs mynduðu 1218 drónar Ólympíuhringina, svo dæmi sé tekið. Þá notaðist söngkonan Lady Gaga við dróna í hálfleikssýningu Superbowl árið 2017. Hver veit nema að drónarnir í Aspen myndi bandaríska fánann, eins og sjá mátti í sýningu Lady Gaga á sínum tíma.
Mest lesið Netanyahu heitir hefndum Erlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Innlent Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Sjá meira