Fótbolti

Arnór hetja Norrköping í mikilvægum sigri

Pilturinn ungi er að gera góða hluti í Svíþjóð.
Pilturinn ungi er að gera góða hluti í Svíþjóð.
Arnór Sigurðarson var hetja Norrköping er liðið vann 1-0 sigur á Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Sigurmarkið kom á áttundu mínútu en Arnór spilaði allan leikinn fyrir Norrköping eins og Jón Guðni Fjóluson og Guðmundur Þórarinsson.

Norrköping er í toppbaráttunni og er nú í þriðja sætinu, þremur stigum frá toppliði AIK sem þó hefur leikið einum leik meira.

Arnór Smárason var ónotaður varamaður er Hammarby burstaði Dalkurd, 4-1. Hammarby er í öðru sætinu, með jafn mörg stig og Norrköping.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×