N1 afleiðing Costco-áhrifanna komin fram og frekari hagræðing sennileg Þorbjörn Þórðarson skrifar 31. júlí 2018 18:30 Samkeppniseftirlitið gaf í gær grænt ljós á samruna N1 og Festis sem á og rekur meðal annars Krónuna og Elko. Í kjölfarið hækkuðu hlutabréfaverð í N1 um 11 prósent og í Högum um 5,5 prósent. Vísir/samsett Hjalti
Hlutabréf N1 hækkuðu um 11 prósent í dag eftir að Samkeppniseftirlitið gaf grænt ljós á samruna félagsins við Krónuna og Elko. Niðurstaðan kom á óvart því stofnunin hafði unnið gegn tilraunum Haga til að sameinast Lyfju og Olís. Sérfræðingar á markaði telja að frekari hagræðing á dagvörumarkaði geti verið framundan þótt Costco-áhrifin séu þegar orðin víðtæk. Í kjölfar komu Costco inn á íslenska dagvörumarkaðinn á árinu 2017 rann upp skeið hagræðingar og samruna á þessum markaði í því skyni að mæta aukinni samkeppni frá bandaríska risanum. Hagar freistuðu þess að taka yfir bæði Lyfju en sá samruni var stöðvaður af Samkeppniseftirlitinu. Það var mat stofnunarinnar að samruninn myndi skaða samkeppni á hreinlætis- og snyrtivörumarkaðnum. Þá hefur yfirtaka Haga á Olís gengið erfiðlega vegna skilyrða sem Samkeppniseftirlitið hefur sett. Fyrr í þessum mánuði sendu Hagar frá sér uppfærða tillögu til að mæta skilyrðum Samkeppniseftirlitsins sem felur meðal annars í sér að fyrirtækið selur frá sér nokkrar Bónusverslanir. Samkeppniseftirlitið heimilaði í gær samruna kaup N1 á Festi, sem rekur meðal annars Krónuna og Elko. Samruninn er háður skilyrðum sem Samkeppniseftirlitið og þessi fyrirtæki hafa gert sátt um. Skilyrðin felast í því að N1 þarf að selja bensínstöðvar Dælunnar til nýs keppinautar og auka aðgengi að birgðarými, dreifingu og eldsneyti í heildsölu. Þá þarf N1 einnig selja verslunina Kjarval á Hellu en með þessu er brugðist við því að samruninn hafi skaðleg áhrif á samkeppni á Hvolsvelli og Hellu en fyrirtækin tvö reka þar samtals þrjár verslanir. Í ljósi tíðinda gærdagsins má spyrja, eru frekari samrunar á dagvörumarkaði framundan? Eða eru Costco-áhrifin á íslenska dagvörumarkaðnum að fullu komin fram?Costco áhrifin ekki sársaukalaus Stefán Broddi Guðjónsson forstöðumaður greiningar Arion banka segir að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að heimila samruna N1 og Festis hafi í raun komið á óvart í ljósi þess hversu treg stofnunin var að heimila samruna Haga og Olís og Haga og Lyfju. „Að minnsta kosti hefur tíðindunum verið vel tekið. Hugsanlega líta menn svo á að Samkeppniseftirlitið verði ekki áfram hindrun fyrir framþróun, sameiningu og frekari hagræðingaraðgerðir sem menn telja að þurfi að eiga sér stað á dagvörumarkaði,“ segir Stefán Broddi. Costco-áhrifin hafa ekki verið alveg sársaukalaus en í byrjun júní var verslanakeðjan Víðir tekin til gjaldþrotaskipta. Síðustu vörurnar voru seldar á brunaútsölu og verslunum undir vörumerki Víðis lokað. Verslunin Kostur, sem hafði markað sér sérstöðu með bandarískri matvöru, fór einnig á hliðina efitr opnun Costco. „Það hefur heilmikil umbreyting átt sér stað á dagvörumarkaðnum. Ég á von á að sú þróun haldi áfram. Svo mun það sjálfsagt gerast í tilviki N1 og Festis og þá í framhaldinu Haga og Olís að menn nái að skapa efnahagslegan ávinning af þessum sameiningum,“ segir Stefán Broddi. Stefán Broddi Guðjónsson forstöðumaður greiningar Arion banka.Vísir/Þorbjörn ÞórðarsonFjárfestar telja að tími Haga sé að renna upp Hlutabréf Haga hækkuðu um 5,5 prósent í dag og er það vísbending um að fjárfestar telji að Samkeppniseftirlitið muni í fyllingu tímans fallast á samruna Haga og Olís. Boltinn er núna hjá Samkeppniseftirlitinu eftir að Hagar lögðu fram tillögu um sölu nokkurra Bónusverslana og sölu bensín- og þjónustustöðva Olís með það fyrir augum að afla samþykkis stofnunarinnar fyrir samrunanum. Tillagan gengur út á að selja fasteign Bónuss að Faxafeni 14, verslanir Bónuss að Hallveigarstíg 1 í Reykjavík og Smiðjuvegi 2, Kópavogi. Þjónustustöðvar Olís í Hamraborg 12, Kópavogi og Háaleitisbraut 12 í Reykjavík og ÓB stöð við Starengi í Reykjavík. Tilkoma Costco á íslenska dagvörumarkaðinn sýnir að snarpar breytingar í eftirspurn geta orðið á þessum markaði og neytendur færa sig hreinlega þangað sem verðið er lægst hverju sinni. Fréttin hefur verið uppfærð.
Mest lesið Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Atvinnulíf „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Viðskipti innlent Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Viðskipti innlent Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Samstarf Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Viðskipti innlent Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Harma ónákvæma tilkynningu Kauphallar Landsbankinn fór fýluferð í Landsrétt vegna Borgunar Skrifuðu undir viljayfirlýsingu um Coda-stöð í Ölfusi Loðnuvertíð eftir allt saman Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Play í sögulegri lægð eftir merkingu Kauphallar Bein útsending: Stærðin skiptir máli Rannsaka gögnin sem skera úr um hvort það verði loðnuvertíð Kaupin á TM: „Þetta mun einfaldlega ganga í gegn“ Árstekjur starfsmanna lækkuðu um fimmtung vegna loðnubrests „Tugir kúabúa gætu þurft að hætta“ „Það kæmi mér verulega á óvart ef þessi samruni yrði að veruleika“ Hulda ráðin framkvæmdastjóri Nox á Íslandi Bætast í eigendahóp Markarinnar Þriðjungur flugvéla Play leigðar út í næstum þrjú ár Fjallað um strandveiðar á Alþingi í sérstakri umræðu Samruninn skili ekki aukinni samkeppni Níu milljarða tap en staðan styrkist Fetar ekki í fótspor forvera sinna hvað ÁTVR varðar „Það er verið að vernda stórkaupmenn“ Sjá meira