Tónlist

Nýtt lag með Justin Bieber og DJ Khaled gerir allt vitlaust

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tveir á toppnum í nýju myndbandi.
Tveir á toppnum í nýju myndbandi.
Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber og DJ Khaled gáfu út nýtt lag saman fyrir helgi og er það unnið í samstarfi við Chance the Rapper og Quavo.

Lagið ber nafið No Brainer og er að gera allt vitlaust um heim allan en þegar þessi frétt er skrifuð hefur verið hlustað á það yfir tuttugu milljón sinnum.

Þeir Justin Bieber og DJ Khaled eru einhverjir vinsælustu tónlistarmenn heims og er sá síðarnefndi ein allra vinsælasta Snapchat-stjarna á jörðinni.

Lagið þykir mjög gott og myndbandið ekki síðar eins og sjá má hér að neðan. Myndbandið sjálft er það þriðja vinsælasta á YouTube um þessar mundir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.