Óli Stefán: Sögðum félaginu við hefðum ekki áhuga á að vera topp sex klúbbur Ástrós Ýr Eggertsdóttir á Floridanavellinum skrifar 27. ágúst 2018 20:00 Óli Stefán Flóventsson var ekki sáttur í leikslok Vísir
Grindavík er svo gott sem úr leik í Evrópubaráttunni í Pepsi deild karla eftir tap gegn Fylki í kvöld. Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur, sagði sína menn hafa sent skír skilaboð um að þeir væru ekki topp 6 klúbbur með frammistöðunni í Árbænum. „Það var margt sem fór úrskeiðis í dag,“ sagði hreinskilinn Óli Stefán eftir leik í Árbænum. Grindavík tapaði 3-1 eftir að staðan var markalaus í hálfeik. „Klisjukennt að segja það en Fylkir vildi þetta bara miklu meira og það sást í dag. Gríðarlega svekktur og með svona frammistöðu eigum við bara nákvæmlega ekkert skilið.“ Ljóst var fyrir leikinn að Grindavík þurfti sigur til þess að halda sér í raunhæfum séns á Evrópusæti, þó enn sé vissulega tölfræðilegur möguleiki á því. Óli Stefán hélt sig við þétta varnarlínu allan leikinn, hugaði hann ekkert að því að fækka í vörninni? „Ég var ekki með marga sóknarvalkosti á bekknum. Gerði það sem ég gat en spurningin um það hvort við vildum vera topp sex klúbbur, hún var til staðar í dag og við svöruðum henni þannig að við höfðum engan áhuga á því.“ Það hlýtur að vera sárt sem þjálfari að sjá sína menn bregðast svona við þessari spurningu? „Já, já. Við erum bara ekki komnir lengra en þetta, því miður.“ „Það var bara svarið sem þeir gáfu félaginu í dag,“ sagði Óli Stefán Flóventsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Handbolti Annar keppandi stal skíðum Fróða á HM Sport Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Fleiri fréttir Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Sjá meira