Ætlum að spila okkar uppáhalds standarda Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 21. ágúst 2018 08:00 Sölvi hlakkar til að troða upp með vinum sínum. „Þetta er mitt draumaband,“ segir hann. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari „
Það sem er skemmtilegt við þessi gömlu lög er að alltaf er hægt að gera eitthvað nýtt við þau. Svo eru þau líka falleg og góð svo það þarf ekki endilega að gera eitthvað mikið,“ segir Sölvi Kolbeinsson saxófónleikari um efni sem hann ætlar að flytja í Norræna húsinu annað kvöld klukkan 20, ásamt félögum sínum í nýstofnuðum Kvartett Sölva Kolbeins. Þar er á ferðinni tónlist sem Sölvi segir hafa verið hluta af efnisskrá þekktra djasstónlistarmanna. „Við ætlum að spila okkar uppáhalds standarda með okkar hætti. Þetta eru ýmist lög úr bandarískum söngleikjum frá 1930-1958 eða lög eftir menn eins eins og Duke Ellington, Thelonious Monk og Miles Davis.“ Í kvartettinum eru, auk Sölva, hinn enski Mark Pringle sem spilar á píanó, hinn þýski Felix Henkelhausen, sem spilar á bassa, og hinn íslenski Magnús Trygvason Eliassen sem er á trommunum. Sölvi kveðst hafa kynnst píanistanum Mark og bassaleikaranum Felix í skólanum Jazz-Institut Berlin haustið 2015. Síðan hafi þeir unnið mikið saman í fjölbreyttum verkefnum. „Við Felix spilum saman í hljómsveitinni Volcano Bjorn sem hefur haldið fjölda tónleika í Þýskalandi auk þess að koma fram á Jazzhátíð Reykjavíkur sumarið 2017 og við Mark höfum komið fram sem dúó. Ég hef líka komið fram með kvintett Mark Pringle og kvintett Felix Henkelhausen í Berlín og allir spiluðum við saman í Finnlandi með kvartett enska bassaleikarans Hayden Prosser. Svo höfum við Magnús líka unnið mikið saman síðustu ár, byrjuðum að spila sem dúó árið 2015 og höfum meðal annars haldið fjölda tónleika í Mengi.“ Sölvi fer aftur til Berlínar í september. „Ég á enn eftir eitt ár í skólanum og svo hugsa ég að ég verði áfram þar ytra. Berlín er spennandi borg. Þar er slatti að gera og ég er kominn ágætlega inn í senuna. Ætlar hann þá að tæla Magnús með sér til að kvartettinn geti haldið áfram að djassa þar úti? „Nei, en hann spilar nú þar reglulega. ADHD er í Þýskalandi á hverju ári og ég hef hitt hann þar þó nokkrum sinnum á síðustu árum,“ svarar hann. „Þetta er fyrsti konsert nýja kvartettsins en ég vona að við höldum samstarfinu áfram.“ En skyldi Sölvi hafa alist upp við djasstónlist í foreldrahúsum? „Nei, reyndar ekki. Ég var alltaf í klassík, byrjaði á saxófóninum átta ára og fókuseraði á klassíkina þar til ég var svona 16 ára, þá var ég byrjaður í FÍH og smám saman kom áhuginn á djassi. Ég komst í svo skemmtilegt samspil þegar ég var svona 17 til 18 ára með rosa góðum tónlistarmönnum, miklu betri en ég. Þar byrjaði djassáhuginn að grassera.“
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Maggie Smith er látin Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Fleiri fréttir Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira