Bíó og sjónvarp

Undir Halastjörnu á stærstu kvikmyndhátíð Asíu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ingvar E. og Atli Rafn fara með hlutverk í myndinni.
Ingvar E. og Atli Rafn fara með hlutverk í myndinni.
Undir Halastjörnu tekur þátt í World Cinema hluta Busan, stærstu kvikmyndahátíðar Asíu sem fram fer í Suður Kóreu 4.-13.október, og er þetta jafnframt heimsfrumsýning  á myndinni. Tvær íslenskar myndir eru á hátíðinni en Lof mér að falla er í sama flokki.

Undir Halastjörnu verður svo frumsýnd 12. október hér á landi en myndin er byggð á Líkfundarmálinu sem vakti gríðarlega athygli hér á landi árið 2004. Leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi er Ari Alexander Ergis Magnússon - aðrir framleiðendur eru Friðrik Þór Friðriksson og Kristinn Þórðarson og Leifur Dagfinsson hjá Truenorth. 

Hugmyndin að myndinni kviknaði út frá raunverulegum atburðum sem gerðust í Litháen og á Íslandi árið 2004. Þann 4. febrúar það ár fór kafari í höfnina á Neskaupstað til að kanna skemmdir á bryggjumannvirkum en fann í staðinn illa leikið lík sem hafði verið þyngt með keðjum og kastað í sjóinn.

Lögreglan hóf ýtarlega rannsókn og í ljós kom að líkið væri af 26 ára Litháa sem við köllum Mihkel í myndinni. Böndin bárust fljótt að smákrimmanum Bóbó sem var nýkominn til bæjarins frá Reykjavík og tveimur öðrum sem komið höfðu að heimsækja hann. Annar þeirra var Jóhann en hinn Igor, vinur Mihkels frá Litháen sem hafði búið nokkur ár á Íslandi og unnið fyrir Jóhann. Í myndinni er Litháen skipt út fyrir Eistland til að hlífa fólki sem tengist sögunni.

Leikstjóri: Ari Alexander Ergis MagnússonHandritshöfundur: Ari Alexander Ergis Magnússon

Meðframleiðendur: Evelin Soosaar-Penttilä, Egil Ødegård Riina Sildos, Jörundur Rafn Arnarson og Jóhann G. Jóhannsson

Aðalhlutverk: Pääru Oja, Kaspar Velberg, Atli Rafn Sigurðsson og Tómas Lemarquis 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.