Haustspá Siggu Kling komin á Vísi!
Sigga leggur áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýti sér orkuna, klappi sér á bakið og elski lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.
Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 14:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar.
Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum toga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com
Tengdar fréttir
Haustspá Siggu Kling – Steingeitin: Þessi umhyggja þín mun samt margborga sig
Elsku Steingeitin mín það er svo sannarlega alltaf nóg að frétta í kringum þig og nú er það spurning um að nenna og stökkva á það sem þú vilt í raun og veru gera.
Haustspá Siggu Kling – Vogin: Það er í eðli þínu að krefjast breytinga
Elsku hjartans Vogin mín, ég veit þú horfir bjartsýnum augum á lífið og ert duglegri en flestir, hættu að pirra þig yfir að ekki allir geti fylgt þér eftir, svoleiðis er það bara.
Haustspá Siggu Kling – Ljónið: Ef það er nóg að borða verður ljónið ekki árásargjarnt
Elsku Ljónið mitt, þú hefur verið á svo merkilegum tímamótum undanfarið og það almáttuga er að gefa þér ný tækifæri til að spreyta þig í því sem þú ert bestur í, sjálfstæði þitt og sjálfstraust er að aukast og þú átt eftir að láta allt dramað í kringum þig næstum því alveg vera.
Haustspá Siggu Kling – Sporðdrekinn: Hefur einstakan húmor
Elsku Sporðdrekinn minn, þú ert elskuleg persóna en hleypir engum auðveldlega að þér, ert bardagamanneskja sem berst fyrir réttlæti.
Haustspá Siggu Kling – Fiskurinn: Hentu í burtu leiðinlegum hugsunum
Elsku Fiskurinn minn, það er svo mikilvægt að þú hugsir bara eins og býfluga, en hún veit ekki að samkvæmt vísindalegum staðreyndum á hún alls ekki að geta flogið, en hún flýgur samt því að engin hefur hvíslað þessu að henni!
Haustspá Siggu Kling – Nautið: Mikill kraftur til þess að heilla sjálfan þig og aðra
Elsku Nautið mitt, þú hefur svo mikið val um það hvort þú sjáir lífið í lit eða þú látir það gamla alltaf hamra á þér, þreytu og vesen og ef það er búið er það ekki til, innst inni ertu að leita að nýjum lífstíl og þú veist alveg hvernig þú getur fengið þann lífstíl sem þú óskar þér.
Haustspá Siggu Kling – Meyjan: Miklar freistingar í kringum þig
Elsku Meyjan mín, þú hefur verið að hugsa svo margt undanfarið, á ég að bæta einhverju við í lífi mínu, er ég að gera rétt eða rangt og ég verð að segja við þig steinhættu þessu röfli við sjálfa þig.
Haustspá Siggu Kling – Vatnsberinn: Margir að sjá þig í öðru ljósi
Elsku Vatnberinn minn þegar þú hættir að láta þig dreyma, þá hættir þú að lifa. Lífið er ótrúlegra en nokkur skáldssaga og þú ert bara búinn með nokkra kafla af þinni lífssögu.
Haustspá Siggu Kling – Tvíburinn: Þú ert að komast inn á nýtt stig í lífinu
Elsku Tvíburinn minn, í eðli þínu kraumar orka sem erfitt er að hemja, þú hefur svo skemmtilegan hlátur og hressir alltaf aðra við, en samt geturðu fundið fyrir þunglyndi.
Haustspá Siggu Kling – Hrúturinn: Mikilvægt að þú finnir ekki sökudólga
Elsku Hrúturinn minn, þvílík heppni fyrir þig það sé að koma haust, þú svífur inn í það eins og vindurinn og lokar fyrir síðasta mánuð sem hefur verið stressandi þrátt fyrir að þú hafir verið á hárréttri leið í lífinu.
Haustspá Siggu Kling – Krabbinn: Líf þitt er búið að vera dálítið óútskýranlegt
Elsku Krabbinn minn, þér finnst að lífið hafi ekki gerst á nógu miklum hraða til að gefa þér þær útkomur sem þú vilt.
Haustspá Siggu Kling – Bogmaðurinn: Ert að fara inn í bjartsýniskast
Elsku Bogmaðurinn minn, þú hefur svo sannarlega mikilvægt hlutverk í lífinu, átt eftir að hrista svo hressilega upp í mönnum og segja skoðun þína með sterkum róm.