Menning

Nýtt myndband frá Teiti Magnússyni

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon gaf í dag út myndband við lagið Bara þú af plötunni Orna sem kom út nýverið. Framleiðsla, kvikmyndataka, leikstjórn og klipping myndbandsins var í höndum Sigurðar Unnars Birgissonar. Faðir Sigurðar fer með hlutverk í myndbandinu. Myndbandið má sjá í spilaranum hér að ofan.

„Mér var í mun að fanga samskonar tón og ég upplifði í laginu sem ég sé sem óðs til einverunnar. Einveran á sér margar myndir. Mér fannst áhugavert að skoða eirð í einverunni. Hvað er til bragðs að taka til að finna þolinmæði fyrir eirðinni? Ég fékk föður minn til samstarfs. Honum fannst ekkert mál að vera fyrir framan myndavélina. Hann er fyrirferðarmikil persóna í mínu lífi og hugmyndagátt. Ég vil nota tækifærið og þakka honum fyrir traustið sem hann sýndi mér. Hann stóð sig með eindæmum vel. Sannkallað múvístar. Ég er sérstaklega ánægður með að fá hold í mynd. Sér í lagi eldra hold. Ég er sjálfur á erótísku tímabili í mínu lífi og tek öllum tækifærum til að vera í sexúalität fagnandi,“ segir Sigurður um myndbandið.

Útgáfutónleikar Orna verða haldnir í Iðnó þann 12. október næstkomandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.