Gagnrýnir ráðningu Maradona og líkir komu hans til Mexíkó við vændi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. september 2018 10:30 Diego Maradona slakur á æfingu með Dorados de Sinaloa. Vísir/Getty
Margir hafa sett spurningamerki við það að eitulyfjafíkillinn Diego Maradona sé allt í einu orðinn þjálfari í nágrenni við einn nafntogaðasta eiturlyfjahring sögunnar. Maradona sjálfur segist vera kominn til Mexíkó til að hefja nýtt og betra líf en það hljóta flestir að sjá það að þetta er kannski ekki besti staðurinn til þess. Sjónvarpsmaðurinn José Luis Sánchez Solá sakar Dorados de Sinaloa félagið um að vera að notfæra sér Maradona. Maradona er einn besti fótboltamaður allra tíma og fjölmiðlar heimsins fjalla mikið um ótrúleg ævintýri hans og vandræði þótt að hann sé fyrir löngu búinn að leggja skóna á hilluna og hafi aldrei náð að fóta sig almennilega sem þjálfari.'A MARADONA DEBEN AYUDARLO A SALIR DE SU ENFERMEDAD, NO CONTRATARLO': CHELÍS pic.twitter.com/ty1FSKanxK — IDP Noticias (@idpnoticias) September 13, 2018 Maradona var að sjálfsögðu spurður út í Sinaloa eiturlyfjahringinn þegar hann hélt sinn fyrsta blaðamannafund sem þjálfari Dorados de Sinaloa en talaði þá eins og endurfæddur maður. Hann væri núna kominn til Sinaloa til að kynnast kodda í fyrsta sinn og sofa á nóttinni og vaka á daginn. Það eru ekki allir sem trúa því að Maradona sé laus við eiturlyfjadjöfulinn og José Luis Sánchez Solá er sannfærður um að svo sé ekki. „Hann mun ekki geta gert neitt og það er ekki af því að hann getur það ekki heldur af því að hann er veikur,“ sagði Sánchez Solá í viðtali við ESPN.Diego Maradona hvílir sig á æfingu í Mexíkó.Vísir/Getty„Maradona þarf ekki á nýju starfi að halda. Hann þarf á hjálp að halda,“ sagði Sánchez Solá. Sánchez Solá gagnrýnir sérstaklega Antonio Mohamed, þjálfara Celta Vigo, sem hjálpaði Maradona að fá starfið í Dorado. „Þeir eru að nota hann og það mun ekki enda vel því hann er veikur. Það er ekki hægt að notfæra sér persónu með þessum hætti til að græða sjálfur. Þetta er bara vændi,“ sagði Sánchez Solá.
Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Íslenska ofurfólkið keppir við þau bestu í heimi Sport „Hún er hjartað og lungað í liðinu“ Körfubolti Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Handbolti Dagskráin í dag: Botnslagir í Bestu Sport „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Íslenski boltinn Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Fótbolti PSG aftur á toppinn Fótbolti Ásta og Laufey valdar í úrvalslið EM Sport „Óskiljanlegt að setja Erlend í þetta verkefni" Fótbolti Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn Enski boltinn Fleiri fréttir PSG aftur á toppinn Sjálfsmark skaut Juvents á toppinn Diljá Ýr skoraði í stórsigri Leuven Harry Kane með þrennu í stórsigri Bayern Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Real Madrid upp að hlið Barcelona á toppnum „Þarft að vinna uppi á Skaga til þess að verða Íslandsmeistari“ Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Birkir kom inn á og skoraði sárabótarmark „Óskiljanlegt að setja Erlend í þetta verkefni" „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Þrjú stig í sarpinn en Orri leitar að markaskónum Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Uppgjörið KA - Vestri 2-1| Elfar Árni afgreiddi Vestra Bætti fyrir vítaklúðrið með því að skora sigurmarkið Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Uppgjörið : FH - Valur 1-1 | Gylfi klúðraði víti og FH stal stigi í uppbótartíma Ísak reiddist dómaranum og lagði þá bara upp mark í staðinn Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Fannst Inter besti kosturinn: „Ekkert að því að búa í Mílanó“ Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Fanney seld fyrir upphæð sem „ekki hefur sést“ og Tinna kemur í staðinn Jón Dagur út í hálfleik en upp um þrjú sæti Sara öflug og komst áfram í bikarnum Mainoo frá í nokkrar vikur Sjá meira