Tveir fuglar í lokin björguðu deginum fyrir Ólafíu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 22. september 2018 12:47 Ólafía Þórunn. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í baráttunni í neðri hluta Estrella Damm Open mótsins sem fram fer á Spáni um helgina. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Ólafía lék ágætlega í gær og tryggði sig í gegnum niðurskurðinn. Hún náði hins vegar ekki að klifra ofar í töfluna í dag og er langt frá efstu konum. Hún var á einu höggi undir pari í mótinu fyrir hringinn í dag. Eftir pör á fyrstu sjö holum dagsins nældi hún í fugl en fékk svo fljótt aftur skolla. Þegar stutt var eftir á hringnum var Ólafía á meðal neðstu kvenna í mótinu eftir niðurskurðinn. Tveir fuglar á síðustu fjórum holunum björguðu hins vegar deginum. Hún kláraði leik á tveimur höggum undir pari og er samtals á þremur höggum undir pari í mótinu jöfn í 43. sæti. Þegar þessi frétt er skrifuð er Anne van Dam frá Hollandi efst á 20 höggum undir pari.
Golf Mest lesið Kári fárveikur í HM-stofunni og endaði í hjartaþræðingu Handbolti „Hvernig datt ykkur í hug að gera þetta?“ Fótbolti Rautt á Slot í hádramatísku jafntefli Enski boltinn Þrjár ógildar lyftur hjá Sigríði Andersen á Evrópumótinu Sport Hve há eru launin hjá besta handboltamanni heims? Handbolti Ekkert áfengi verði leyft á HM 2034 Fótbolti Uppgjörið: Haukar - ÍBV 28-24 | Eyjamenn sjálfum sér verstir Handbolti Víkingar hættir í Lengjubikarnum Íslenski boltinn Leik lokið: Grindavík - Álftanes 92-94 | Dúi hetjan í fjarveru NBA mannsins Körfubolti „Hann er í furðu góðu standi miðað við að vera fertugur“ Fótbolti Fleiri fréttir Tiger Woods dregur sig úr keppni á sínu eigin móti Tiger snýr aftur á PGA-mótaröðina Opna bandaríska fyrsta risamótið til að opna dyrnar fyrir LIV Tiger syrgir móður sína Gunnlaugur í besta sæti Íslendings Lék Lo Romero völlinn á 58 höggum og sjáðu hann enda á svakalegu höggi Vann undrabarnið og braut blað í íslenskri golfsögu Gunnlaugur vann en Evrópa tapaði Allt jafnt fyrir lokadaginn Sögufrægur golfvöllur í hættu vegna eldanna í Los Angeles Kylfurnar eftir í Amsterdam en Gunnlaugur nýtur sín meðal þeirra bestu Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum Sjá meira