Innlent

Sjá ó­trú­legt mynd­band: Tvær stúlkur bökkuðu bíl sínum í­trekað á hjálpar­tækja­verslun og höfðu á brott með sér kyn­lífs­dúkku

Jakob Bjarnar skrifar
Hér getur að líta inngang búðarinnar, sem er illa leikinn eftir hroðalegar aðfarirnar í morgun.
Hér getur að líta inngang búðarinnar, sem er illa leikinn eftir hroðalegar aðfarirnar í morgun. visir/vilhelm

Hroðalegar aðfarir voru viðhafðar í morgun þá er tvær stúlkur brutust inn í Adam og Evu, kynlífshjálpartækjaverslun sem er við Kleppsveg í Reykjavík.

Þær bökkuðu bíl sínum ítrekað á inngang verslunarinnar, á hurð og gengu glerbrotin yfir bílinn og gangstéttina. Þegar þær höfðu keyrt hurðina niður hlupu þær úr bílnum, inn í verslunina og drösluðu kynlífsdúkku úr búðinni í bílinn, auk annars varnings og óku þá á brott. Samkvæmt upplýsingum frá eiganda verslunarinnar er það sem ræningjarnir höfðu á brott með sér silicon-kynlífsdúkka sem kostar 350 þúsund krónur, nokkrir titrarar og sleipiefni.



Aðfarir má sjá á myndbandinu sem er hér neðar. Ekki er vitað hverjir hinir ofsafengnu ræningjar eru né heldur hvað það var sem rak þær til svo harkalegra aðgerða, sem náðist á öryggismyndavélar.

Þetta var í morgun á sjöunda tímanum. Að sögn eiganda verslunarinnar, Þorvaldar Steinþórssonar, var bíllinn á stolnum númerum. Og þá hafði hann upplýsingar um að fyrr um nóttina hefði þessi sami bíll komið við sögu þar sem bensíni var stolið.

Vísir fór á vettvang nú í morgun og þar var heldur betur hroðalegt um að litast. Allt brotið og bramlað við innganginn og miklar skemmdir höfðu verið unnar á húsnæðinu.

Ef einhverjir lesendur Vísis hafa orðið varir við mikið skemmdan Hyundai i10 eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.

Uppfært 11:00.

Í fyrri útgáfu þessarar fréttar kom fram að sílikondúkkan sem hinir býræfnu þjófar höfðu á brott með sér kosti 550 þúsund krónur. Upplýsingarnar reyndust ónákvæmar, téð dúkka er metin á 350 þúsund krónur. Eru lesendur beðnir velvirðingar á þessu.

Sambærilega dúkku höfðu stúlkurnar með sér nú í morgun. Hún kostar 350 þúsund krónur.visir/vilhelm
Hroðalegt var um að litast í Adam og Evu og var eigandanum illa brugðið.visir/vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×