Hún hefur fengið nóg af því sem hún kallar tregðu í samskiptum og almennt upplýsingaleysi í Sjómannafélaginu. Þolinmæðin er á þrotum. Heiðveig María hefur ítrekað kallað eftir upplýsingum um eitt og annað sem snýr að félaginu en er ekki svo mikið sem virt svars. Á vormánuðum sendi hún fyrirspurn, sem hún hefur svo ítrekað með því að áframsenda hana á stjórnarmenn félagsins, trúnaðarráð og starfsmenn félagsins en allt kemur fyrir ekki. Fyrirspurn hennar má sjá hér neðar.

„Ég ætla ekki að leyfa mér að taka svo stórt til orða. En það lítur eiginlega út fyrir það. Ég get ekki sagt annað. Ég fæ engin gögn, engar upplýsingar. Það verður bara að hjóla í þetta. Það verður einhver að gera það,“ segir Heiðveig María hressileg en Vísir ræddi við hana í kaldri golunni á kæjanum úti á Granda. Hún er hvergi bangin við að vaða í vélarnar og talar enga tæpitungu. Hún segir viðbrögð félaga sinna meðal sjómanna vegna fyrirhugaðs framboðs hafa verið afar góð og hafa margir orðið til að lýsa yfir stuðningi.
Hún er að fara á sjó á morgun. Hún er á Engey ER 1 sem hún kallar Drottninguna. Eitt þriggja systurskipa sem Grandi gerir út. Hún er háseti og kokkur til skiptis. En, starfar reyndar alla jafna sjálfstætt sem viðskiptalögfræðingur.
„En fer einn til tvo túra mánuði,“ segir Heiðveig María. Hún var til sjós um tveggja eða þriggja ára skeið um aldamótin. Fór svo til að sinna ungum börnum sínum en nú, þegar þau eru orðin nógu stór og aðstæður leyfa, fer hún á sjó.
Lýðræðislegt aðgengi afar takmarkað
Heiðveig María hefur ýmislegt út á forystu sjómanna að setja. Hún segir almennt lýðræðislegt aðgengi afar takmarkað, það sé líkt og að ganga á sýrópi að fá upplýsingar og að forystan öll sé ósamstiga.
Meðan á verkfallinu stóð varð klofningur í Sjómannasambandinu,“ segir Heiðveig María, þegar SVG dró samningsumboð sitt til baka og heim í hús. Frá Sjómannasambandinu. Og Sjómannafélagið, sem ekki er aðili að Sjómannasambandinu, spilar sóló. Hún veit ekki einu sinni hversu margir eru í Sjómannafélaginu, vegna takmarkaðs aðgengis að upplýsingum. Líklega 6 til 700 manns. Og áður en SVG, sem telur 700 manns, klauf sig úr Sjómannasambandinu voru þar rúmlega 2.100 manns. Heiðveig María segir Valmund Valmundsson, formann Sjómannasambandsins, illa jarðtengdan, það sýni málflutningur hans í tengslum við myndavélafrumvarpið. Um það séu mjög skiptar skoðanir.
Forysta sjómanna smákóngasamfélag
Aðallega er það framgangan í síðasta verkfalli og svo þessi þögn og þetta tómlæti sem knýr Heiðveigu Maríu til að fara gegn sitjandi stjórn.
Aðalfundur í Sjómannafélaginu er jafnan haldinn milli jóla og nýárs. En, kosið er frá lokum nóvembermánaðar til 10. janúar. Þannig að nú stefnir í að hiti verði í kolum í Sjómannafélaginu. Ólíklegt verður að heita að Jónas Garðarsson formaður láti af völdum þegjandi og hljóðalaust. Eftir því sem Heiðveig María kemst næst hefur aldrei verið tekist á um forystuna í kosningum heldur hefur trúnaðarmannaráð yfirleitt gengið frá lista þeirra sem eru í framboði sem svo hefur verið samþykkt þegjandi og hljóðalaust.