Vissi ekkert um Ísland en varð fljótt ástfangin af landi og þjóð Hjörvar Ólafsson skrifar 19. október 2018 10:30 Danielle Rodriguez í leik á móti Val. vísir
Danielle Rodriguez, lykil leikmaður í kvennaliði Stjörnunnar í körfubolta sem er í toppbaráttu Domino’s-deildarinnar, fékk körfuboltann nánast í vöggugjöf. Faðir hennar lék körfubolta á sínum tíma og hann smitaði hana af körfuboltabakteríunni. „Ég byrjaði að leika mér í körfubolta um það bil þriggja ára gömul og þegar ég var fjögurra ára mætti ég á mína fyrstu æfingu. Þá var bara fullt af litlum körfum dreift um sal og við máttum leika okkur og kynnast því að vera með boltann í höndunum. Ég æfði frjálsar íþróttir framan af, en það var alltaf ljóst að körfuboltinn væri mitt líf og yndi,“ segir Danielle um uppruna sinn í körfuboltanum. „Ég spilaði með bæði framhaldsskólaliði í skólanum mínum og síðan nokkuð öflugu háskólaliði. Þar mætti ég efnilegustu og síðar bestu körfuboltakonum í Bandaríkjunum. Stefnan var ávallt að hafa atvinnu af því að spila körfubolta og draumurinn var að spila annað hvort í WNBA eða einhverri deild í Evrópu. Þegar háskólanum lauk var fljótlega ljóst að ég myndi ekki komast að í WNBA eða neinni af stóru deildunum í Evrópu,“ segir hún um þróunina á körfuboltaferli sínum. „Umboðsmaðurinn sagði mér svo frá því að íslenskt lið hefði áhuga á kröftum mínum og á þeim tíma vissi ég ekkert um Ísland og fór beint á Google að afla mér upplýsinga um landið. Þar sá ég hvað landið væri lítið, hversu kalt væri hér alla jafna og náttúran væri óvægin. Mér leist ekkert allt of vel á þetta í fyrstu, en þar sem ég var ekki með mörg tilboð á þessum tíma ákvað ég að slá til,“ segir hún um aðdraganda þess að hún gekk til liðs við Stjörnuna.vísir„Ég varð fljótlega mjög hrifin af landi og þjóð þegar ég kom til Íslands. Ég ólst upp í Los Angeles og fluttist svo til Utah. Ég er vön því að búa í samfélagi þar sem allt getur gerst og einkum og sér í lagi á síðustu og verstu tímum. Hér finnst mér ég vera örugg og fólkið er afar vinsamlegt. Hér er friðsælt og mér líður afar vel hér. Ég gæti alveg ímyndað mér að vera hér áfram,en ég tek bara eitt ár í einu hvað körfuboltann varðar,“ segir þessi öflugi körfuboltamaður um kynni sín af Íslandi og framtíðaráform sín. „Það tók vissulega sinn tíma að venjast körfuboltanum hér á landi þar sem hann er ólíkur því sem gengur og gerist í háskólaboltanum þar sem ég var að spila. Það var líkamlega krefjandi að spila hér og þess var krafist af mér að skora meira en ég var vön. Það var mikiklpressa á mér að skila mörgum stigum í hverjum leik. Einnig fannst mér ég þurfa að sýna meiri fjölhæfni hérna en úti. Þá var breiddin í gæðum ekki jafn mikil og ég var vön. Þetta vandist hins vegar fljótt og ég var fljót að koma mér inn í íslenskan þankagang,“ segir hún um muninn á bandarískum háskólakörfubolta og íslensku deildinni. „Mér finnst íslenska deildin hafa farið fram með hverju árinu sem ég hef leikið hér á landi. Þetta er þriðja árið mitt hérna og mér finnst bæði leikmannahópur Stjörnunnar sem og annarra liða hafa batnað til mikilla muna. Íslenskir leikmenn hafa tekið stórstígum framförum og fjölgun erlendra leikmanna gerir deildina betri,“ segir hún. „Við erum með breiðari leikmannahóp á þessu keppnistímabili en fyrri tvö tímabilin mín og það er ekki jafn mikil áhersla á að ég sjái eins mikið um stigaskorið og annað framlag hjá liðinu á þessari leiktíð. Ég tel okkur eiga raunhæfan möguleika á að berjast um þá titla sem í boði eru á þessari leiktíð. Við setjum stefnuna á það, en tökum bara einn leik í einu,“ segir Danielle um baráttuna sem fram undan er. Stjarnan fór vel af stað í deildinni og hafði betur í fyrstu tveimur leikjum sínum áður en liðið tapaði fyrir Snæfelli í toppslag deildarinnar á miðvikudaginn var.
Birtist í Fréttablaðinu Dominos-deild kvenna Mest lesið Fyrrverandi leikmaður United laminn á bar í Moskvu Enski boltinn Sló met Freddys Adu og er yngstur í sögunni Fótbolti England: Hver er kominn, að koma, farinn og að fara? Enski boltinn Víkingar á leið til Albaníu Fótbolti Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Fótbolti Stelpurnar gapandi í stúkunni yfir troðslu Almars Körfubolti Mahomes með skýr skilaboð: „Tími til að spila betur“ Sport „Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“ Fótbolti Dagskráin í dag: Örlög Vals og Breiðabliks ráðast Sport Löw vill taka við enska landsliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Stelpurnar gapandi í stúkunni yfir troðslu Almars Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Adam Silver ver nýjan svuntuskatt NBA deildarinnar Jón Axel fer í nýtt félag á Spáni Faðir Kobe Bryant er látinn Njarðvíkingar búnir að finna sér Bandaríkjamann Þrjátíu stiga tap gegn Slóvenum en sextán liða úrslit framundan Keflvíkingar fá þýskan framherja Stelpurnar komust ekki upp í A-deildina Tólf ár á milli fjórðu og fimmtu Ólympíuleika hennar Bronny James hefur klikkað á öllum skotunum sínum Stórkostlegt svar hjá íslensku strákunum eftir skellinn í gær Fáliðað lið Ísland tapaði í undanúrslitum Norðurlandameistarnir fengu stóran skell í fyrsta leik EM Matareitrun á EM: Fimm veikar í íslenska hópnum og ein fór á sjúkrahús Brunson hjálpar Knicks með því að skilja fimmtán milljarða eftir á borðinu Búin að bæta nýliðametið þótt að það séu enn sextán leikir eftir Innlit í nýtt íþróttahús Njarðvíkinga: „Þetta er þvílíkt mannvirki“ Íslensku stelpurnar í undanúrslit eftir stórsigur á Írum Caitlin Clark með tölur sem hafa aldrei sést í NBA né WNBA Kawhi vildi spila á Ólympíuleikunum en var sendur heim Agnes og Eva atkvæðamestar í tapi fyrir Tékkum Danski Jokic í Bónus-deildina „Sannfærð um að þessi samningur lyfti körfuboltanum enn meira upp“ Subway deildin verður Bónus deildin Reiknar með því að hinn fjörutíu og tveggja ára Hlynur troði á komandi tímabili Tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Grindvíkingar fá landsliðskonu frá Njarðvík Álftanes fær til sín leikjahæsta Stjörnumanninn Sjá meira