Sport

Gisti fangageymslur eftir að hafa hent gervilim inn á völlinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er alltaf líf í stuðningsmönnum Bills.
Það er alltaf líf í stuðningsmönnum Bills. vísir/getty
Áhorfandi á leik Buffalo Bills og New England Patriots sá ekki alveg fyrir sér hvaða afleiðingar það myndi hafa að henda gervilim inn á völlinn.

Lögreglan tók málið mjög alvarlega og handtók hann. Ekki nóg með það heldur gisti hann eina nótt í fangelsi og var leiddur fyrir dómara.





Sá lét hann greiða sekt og sagði að hann þyrfti ekki að mæta aftur fyrir rétt í desember ef hann myndi ráða sér lögfræðing. Það myndi henta manninum vel enda býr hann í Flórída.

Hinn 34 ára gamli Michael Abdallah vildi halda í hefðina en þetta er í þriðja sinn sem þetta er gert í leik þessara liða. Abdallah mun líklega ekki taka þátt í svona sprelli aftur.





NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×